Í hlaupafræðum er til hugtak sem heitir þröskuldur. Það er hraðinn þar sem líkaminn nær enn að hreinsa mjólkursýruna jafnhratt og hún myndast. Aðeins ofar verður vesen. Hlauparinn heldur kannski út í nokkrar mínútur en afkastagetan dettur hratt niður ef álaginu er ekki létt. Það kom mér á óvart þegar ég byrjaði að hlaupa hversu hægt er hlaupið alla jafna. Stór hluti æfinga fer fram á hraða sem virkar næstum letilegur. Gæðaæfingar eru svo almennt rétt undir þröskuldi. Málið er nefnilega ekki að finna sársaukamörkin heldur að færa þau. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift