Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Maraþon á spretthraða

Read Full Article →

Í hlaupafræðum er til hugtak sem heitir þröskuldur. Það er hraðinn þar sem líkaminn nær enn að hreinsa mjólkursýruna jafnhratt og hún myndast. Aðeins ofar verður vesen. Hlauparinn heldur kannski út í nokkrar mínútur en afkastagetan dettur hratt niður ef álaginu er ekki létt. Það kom mér á óvart þegar ég byrjaði að hlaupa hversu hægt er hlaupið alla jafna. Stór hluti æfinga fer fram á hraða sem virkar næstum letilegur. Gæðaæfingar eru svo almennt rétt undir þröskuldi. Málið er nefnilega ekki að finna sársaukamörkin heldur að færa þau. Mörg fyrirtæki æfa öfugt. Allt er forgangsverkefni, allt á að klárast í þessum ársfjórðungi og allir hlaupa á þeim hraða sem þeir ráða rétt svo við. Þetta lítur ágætlega út á glærum. Vandinn er bara sá að sýran safnast upp löngu áður en hún sést í rekstrarreikningnum. Hún birtist sem starfsmannavelta sem enginn getur útskýrt með góðu móti, sem tæknileg skuld sem aldrei kemst á dagskrá og sem ákvarðanir teknar á hlaupum af fólki sem hafði ekkert svigrúm til að hugsa þær til enda. Þegar tölurnar gefa loksins eftir er orsökin hálfs árs gömul og enginn tengir hana við það sem raunverulega gerðist. Erfiðasti hlutinn við þröskuldsþjálfun er ekki áreynslan heldur aðhaldið. Að hlaupa hægar en þú getur og læra að njóta þess, í trausti þess að það skili sér þegar á reynir. Fyrir stjórnendur þýðir þetta að setja færri verkefni af stað en ella. Óþægilegt, því hraði sést utan frá en úthald ekki. Þröskuldurinn er ekki þar sem þú springur. Hann er þar sem þú getur haldið áfram. Fyrirtæki sem finna hann vinna kannski ekki sprettinn en þau eru enn á hlaupum þegar hin hafa gefist upp. Greinin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article