Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

ESA vill betra eftirlit með grænmetis- og ávaxtaframleiðslu

Read Full Article →

Efla þarf eftirlit með framleiðendum ávaxta og grænmetis hér á landi, að mati Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA). Stofnunin gerði úttekt á kerfinu í september og birti skýrslu í dag. Þar segir að umtalsverðir veikleikar séu í eftirlitskerfinu þegar kemur að samhæfingu þeirra sem eftirlitinu sinna. ESA hefur bent á slíka veikleika allt frá 2012 og sendi íslenskum stjórnvöldum formlegt áminningarbréf 2024. ESA beinir fernum tilmælum til íslenskra stjórnvalda. Þau ganga út á að tryggja skilvirka samhæfingu og samstarf lögbærra yfirvalda, aðgerðir til að leiðrétta frávik í eftirlitsheimsóknum, tryggja að sýnataka og greiningar vegna örverumælinga séu í samræmi við gildandi löggjöf og að opinbert eftirlit tryggi að framleiðendur baupaspíra uppfylli lögbundnar kröfur um sýnatöku og örverumælingar. Fram kemur í tilkynningu frá EFTA að stjórnvöld hafa lagt fram áætlun um úrbætur.

Share this article