Heilbrigðisráðuneytið leggur til heildarendurskoðun á regluverki um tóbak, nikótínvörur og rafrettur, með nýjum drögum að frumvarpi til laga sem birt voru í samráðsgátt stjórnvalda í gær. Drögin fela m.a. í sér tillögu um að eftirlit með smásölu nikótínvara verði hjá ÁTVR. Í frumvarpi segir að markmið laganna sé að draga úr heilsutjóni og dauðsföllum af völdum tóbaks, nikótíns og tengdra vara, minnka neyslu þeirra og vernda almenning fyrir áhrifum þeirra. Þá er jafnframt lögð sérstök áhersla á að sporna gegn notkun meðal barna og ungmenna. Frumvarpið sameinar í eina heildarlöggjöf reglur sem nú er að finna í fleiri en einum lagabálki og nær jafnt til tóbaksvara, nikótínvara, rafrettna, áfyllinga þeirra og tiltekinna staðgönguvara sem hvorki innihalda tóbak né nikótín. Lagðar eru til samræmdar reglur um m.a. innihaldsefni, merkingar, umbúðir, sölu og afhendingu varanna. Samkvæmt drögunum yrði sérstakt leyfi ÁTVR skilyrði fyrir smásölu, netsölu og rekstri sérverslana sem selja tóbaks- og nikótínvörur. Leyfin yrðu veitt til allt að fjögurra ára í senn og er í frumvarpi jafnframt kveðið á um skilyrði fyrir leyfisveitingu og grundvöll fyrir afturköllun leyfa. Gert er ráð fyrir að ÁTVR fari með eftirlit við framkvæmd laganna. Stofnunin muni annast leyfisveitingar, halda utan um skráningu tilkynntra vara og leyfishafa og fari jafnframt með tilteknar valdheimildir gagnvart vörum sem uppfylla ekki skilyrði laganna. Þannig muni ÁTVR geta að eigin frumkvæði fjallað um einstök mál og tekið ákvörðun um þau eða samkvæmt erindi eða ábendingu. Jafnframt mun ÁTVR setja sér reglur um málsmeðferð, að því er segir í drögunum. „Gert er ráð fyrir að kostnaðarauki ríkissjóðs vegna breytts fyrirkomulags stjórnsýslu verði nokkur en einkum er gert ráð fyrir auknu hlutverki ÁTVR sem eftirlitsaðila á sviði tóbaks- og nikótínvarna. Verður að gera ráð fyrir að þetta hlutverk kalli á fjölgun stöðugilda en sú útvistun verkefna til faggiltra skoðunarstofa sem gert er ráð fyrir hefði einnig kostnaðarauka í för með sér,“ segir í 6. gr. greinargerðar með frumvarpinu. „Þá er viðbúið að fjárútlát verði hjá Matvælastofnun, Umhverfis- og orkustofnunar eða, eftir atvikum, öðrum stofnunum ríkisins að því marki sem nýtt er heimild til að fela þeim hlutverk samkvæmt lögunum.“ Í frumvarpinu er einnig gert ráð fyrir að reglugerðarheimild ráðherra um nánari framkvæmd laganna á ýmsum sviðum, meðal annars um leyfisveitingar, eftirlit, merkingar, umbúðir, innihaldsefni og eiginleika þeirra vara sem lögin taka til. Drögin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda þar sem einstaklingar, fyrirtæki og aðrir hagsmunaaðilar geta sent inn umsagnir. Frestur til umsagna rennur út 11. ágúst næstkomandi.