Félag atvinnurekenda (FA) telur að drög heilbrigðisráðuneytisins að frumvarpi til laga um nikótín- og tóbaksvarnir feli í sér augljóst brot á stjórnsýslulögum, samkeppnislögum og EES-samningnum. Frumvarpsdrögin birtust í samráðsgátt stjórnvalda 28. júlí síðastliðinn og hefur FA meðal annars gagnrýnt drögin fyrir að fella bæði nikótínvörur og tóbaksvörur undir sömu löggjöf. Þyngsta gagnrýni félagsins snýr hins vegar að því að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, sem er sjálf framleiðandi og seljandi tóbaksvara, fái víðtækar valdheimildir gagnvart fyrirtækjum sem keppa við hana á markaði. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA, segir í samtali við Viðskiptablaðið að ÁTVR fari nú þegar með eftirlit með innflytjendum neftóbaks á sama tíma og það framleiðir íslenskt neftóbak. Sjá einnig Vill fela ÁTVR að hafa eftirlit með sölu nikótínvara „ÁTVR og íslenska ríkið hafa mikla fjárhagslega hagsmuni af tóbakssölu og nikótínvörurnar eru í beinni samkeppni við tóbakið. Nikótínpúðarnir eru í beinni samkeppni við íslenska munntóbakið sem ÁTVR framleiðir því það er aðallega notað í vör.“ Í frumvarpsdrögunum er lagt til að sömu lög gildi um tóbak og nikótínvörur og að eftirlitshlutverk ÁTVR nái þar með einnig til rafretta, nikótínpúða og annarra nikótínvara. „Þarna er verið að fela opinberri stofnun, sem er framleiðandi og seljandi tóbaksvara, vald til að taka vörur keppinauta af markaði.“ Samkvæmt frumvarpsdrögunum fengi stofnunin meðal annars vald til að banna innflutning og sölu á vörum keppinauta eða innkalla þær af markaði, krefja þá um upplýsingar og gögn, fá afhent sýnishorn og uppskriftir, fá upplýsingar um sölumagn, gera prófanir á vörum þeirra, veita þeim leyfi til netsölu og skoða framleiðslustaði og vörugeymslur. „Þarna er verið að fela opinberri stofnun, sem er framleiðandi og seljandi tóbaksvara, vald til að taka vörur keppinauta af markaði, heimildir til að fá frá þeim uppskriftir og alls konar samkeppnisupplýsingar og heimildir til að mæta fyrirvaralaust á framleiðslustað.“ Annar þáttur sem FA gagnrýnir snýr að netverslun en í drögunum er gert ráð fyrir að netsala sé heimil, hins vegar yrði sett bann við því að þriðji aðili afhendi vörurnar. „Þú mátt kaupa á netinu og þú verður þá að koma og sækja, eða þá að búðin verður að vera með einhvern í vinnu hjá sér við að keyra sendinguna til Egilsstaða eða annars staðar.“ Þá gagnrýnir FA að ráðherra sé falið mikið vald með reglugerðarheimildum, meðal annars til að takmarka bragðefni í nikótínvörum, kveða á um einsleitar umbúðir þeirra og lækka leyfilegan hámarksstyrk nikótíns í tóbaksvörum og rafrettuvökva. Félagið segir þetta vera inngrip í atvinnufrelsi, eignarrétt og tjáningarfrelsi. „Ráðuneytið þykist hafa tekið eitthvert mark á þeim sjónarmiðum en veitir í rauninni bara ráðherra heimild til að ákveða þessa hluti með reglugerð, sem er eiginlega verra. Þá er verið að biðja Alþingi að afhenda ráðherra vald til að grípa inn í stjórnarskrárvarin réttindi án nokkurs eftirlits Alþingis með því hvernig það er gert.“