Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fær styrk til að selja íslenska ofurfæðu í Bretlandi

Read Full Article →

„Áhugi minn á fullvinnslu og markaðssetningu íslenskra sjávarafurða nær langt aftur,“ segir Rúnar Ómarsson, eigandi Bifröst Foods sem fær 13,4 milljóna króna styrk úr Matvælasjóði til að markaðssetja próteinríka heilsusnakkið Fish & Chips á neytendamarkað í Bretlandi. Rúnar rifjar upp þegar hann var nítján og tuttugu ára á frystitogara og var á sama tíma að stúdera markaðssetningu. Var mikið að spá í umbúðir og frágang „Mér fannst þessir tveir heimar sem blanda mjög áhugaverðir og var mikið að spá í umbúðir og frágang á fisknum um borð í frystitogaranum,“ segir hann. „Í framhaldinu var ég alltaf með það bak við eyrað að einhvern tímann myndi ég búa til fullunna, alþjóðlega neytendavöru úr íslensku sjávarfangi.“ Áhugi á fullunnum sjávarafurðum tók sig upp aftur Fyrir um tíu árum var Rúnar að vinna fyrir útflutningsfyrirtækið Niceland Seafood. „Ég stóð þá fyrir því að það yrði búið til app með fullum, myndrænum rekjanleika fyrir sjávarafurðir frá Íslandi sem væru að fara á neytendamarkað í Bandaríkjunum. Þá tók þessi mikli áhugi á fullunnum sjávarafurðum sig upp aftur,“ segir hann. Snakk úr sjálfbærum auðlindum Svona lítur það út, Fish & Chips-snakkið sem framleiðandinn hefur þróað um árabil og segir nú tilbúið fyrir markaðssókn í Bretlandi. Mynd/Aðsend Í kjölfarið segist Rúnar hafa að gamni sínu farið að þróa eitthvað sem hann teldi vera markaðshæfa fullunna sjávarafurðavöru sem kallaðist á við aukna eftirspurn í heiminum eftir náttúrulegu próteini, skyndimáltíðum og snakki úr sjálfbærum auðlindum. Hann hafi unnið sem leiðsögumaður í fjallahjólatúrum í tíu ár og kynnst því af eigin raun að þar skipti góð næring miklu máli. Kostur að geymast lengi „Ég vissi það því af eigin raun að þurrkaður fiskur, sem er auðvitað 84 prósent prótein, inniheldur magnesíum og B-12 vítamín og joð og sink og fleiri eftirsótt næringarefni, væri sannkölluð ofurfæða. Það er mikilvæg staðreynd. Og það sem skipti kannski enn meira máli væri að vegna þess að fiskurinn er þurrkaður geymist hann lengi. Og matvara frá Íslandi sem á að fara á neytendamarkað utan Íslands þarf helst að geymast lengi, eða það er allavega mikill kostur,“ segir Rúnar, sem þá var búinn að marka sér stefnu. „Þurrkaður fiskur er í raun ofurfæða“ Fyrsta matvaran sem Rúnar framleiðir er blanda af þurrkuðum fiskflögum og kartöfluflögum, og er seld undir vöruheitinu Fish & chips og vörumerkinu Nordical, sem er í eigu Bifröst Foods. „Þurrkaður fiskur er í raun ofurfæða, og ofurdýr sem slíkur, en kartöfluflögur hins vegar eru næringarríkar og tiltölulega ódýrar og passa því einstaklega vel með stökkum fiskflögum. Og síðan í þriðja lagi er hugtakið „fish and chips“ þekkt um allan heim sem ódýr máltíð sem sameinar prótein, kolvetni og fitu,“ segir Rúnar. Til sölu hér í þrjú ár Að sögn Rúnars tók það hann þrjú til fjögur ár að fullþróa vöruna með breytingum á umbúðum, stærðum og uppskriftum þar til hann var ánægður með útkomuna. Varan hafi nú verið til sölu á Íslandi í þrjú ár og viðtökur verið góðar. Hundrað þúsund einingar seldar „Þegar ég var búinn að selja yfir hundrað þúsund einingar í gegnum verslanir á Íslandi fannst mér varan búin að sýna og sanna að hún ætti fullt erindi á neytendamarkað. Ég vildi láta reyna á það hvort ég gæti markaðssett vöruna erlendis og hef staðið í þeim undirbúningi í dálítinn tíma,“ segir Rúnar. Fram til þessa segist Rúnar hafa fjármagnað dæmið úr eigin vasa og styrkurinn sé því kærkominn. Stefna verði á stærri markað en þann íslenska „Þetta hefur tekið tíma en sá tími hefur verið mikilvægur til að sannreyna hugmyndina og vöruna. Nú er kominn tími til að láta reyna almennilega á hvort það sé hægt að markaðssetja vöruna erlendis, enda var hún upprunalega hönnuð með alþjóðlega markaðssetningu í huga, þótt ég sé auðvitað mjög þakklátur fyrir frábærar viðtökur á Íslandi,“ segir Rúnar og tekur fram að stefna verði á stærri markað en þann íslenska til þess að framleiðslan borgi sig fyrir alvöru og standi jafnframt undir áframhaldandi vöruþróun fyrirtækisins þar sem fleiri vörur séu á teikniborðinu. Bretland hentugur markaður „Bretland er auðvitað nokkuð stórmarkaður og þetta er mjög blönduð þjóð. Þarna býr margt fólk frá Indlandi/Asíu, Afríku og Rússlandi, löndum þar sem þurrkaður fiskur af ýmsu tagi er vinsæl vara. Og síðan auðvitað þekkja Bretarnir íslenskan fisk í gegnum áratugaveiðar og viðskipti frá Íslandi frá því löngu fyrir þorskastríð. Þannig að ég tel breska markaðinn af ýmsum ástæðum bestan til þess að láta reyna á markaðssetningu á þessari vöru,“ segir Rúnar. Beint til neytenda í gegnum vefverslun Fish & Chips-snakkið hyggst Rúnar selja beint til neytenda í Bretlandi í gegnum vefverslun sem hann er að setja upp ásamt afhendingarferlum og tilheyrandi. „Ég ætla að taka þátt í vörusýningu núna um miðjan september í London sem heitir Natural and Organic Food Show,“ segir Rúnar og nefnir að hann hafi í sarpinum talsverða reynslu í markaðssetningu á neytendamarkaði á alþjóða vísu. Styrkurinn skilyrtur „Það er mjög aukin eftirspurn eftir próteinríku, náttúrulegu snakki. Það kostar talsverðan pening að þróa neytendavöru og koma henni í gegnum svona tilraunasölu og stilla hana af þannig að vara, verð, magn, umbúðir og merkingar og allt þetta passi saman. Og það að fá þennan styrk frá Matvælasjóði þýðir að ég geti látið reyna á það hvort varan seljist utan Íslands,“ segir Rúnar, sem undirstrikar að styrkurinn sé skilyrtur á þann hátt að hann þurfi að setja að minnsta kosti jafn mikið fé á móti styrknum í verkefnið. Vinsælt meðal útivistarfólks „Fish & Chips-snakkið er orðið mjög vinsælt meðal útivistarfólks á Íslandi, til dæmis eru fjallahlauparar, hjólarar og útivistarfólk að kaupa þetta mikið sem nesti. Krökkum þykir þetta líka mjög gott og borða með bestu lyst. Varan er alveg búin að sanna sig í stöðugleika og gæðum, og næsta mál er síðan að sjá hvort mér tekst að markaðssetja hana utan Íslands, sem var alltaf hugmyndin,“ segir Rúnar. Innblásið af íslenskum og breskum hefðum Að sögn Rúnars er Fish & Chips-snakkið innblásið af íslenskum og breskum hefðum og gert úr þurrkuðum fiski og alvöru kartöfluflögum. Það sé hugsað til að mæta helstu straumum og stefnum á neytendavörumarkaði, þar sem æ meira sé sótt í náttúrulegt prótein úr sjálfbærum auðlindum, í formi snakks og skyndimáltíða. „Við fengum gullverðlaun á London Design Awards fyrir útlitshönnun og skilaboð umbúðanna, sem þóttu koma hugmyndinni á framúrskarandi hátt á framfæri við mögulega kaupendur vörunnar,“ segir Rúnar, sem nú í september verður á sýningunni Natural & Organic Food Show í London. Þá verði um leið farið í markaðssetningu beint til neytenda í Bretlandi, sem hafi þegar sýnt mjög jákvæð viðbrögð.

Share this article