Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þrjótarnir skildu ekki eftir bréf

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 31.7.2026 | 10:39 Þrjótarnir skildu ekki eftir bréf Ásgeir Pétursson hefur rekið Dalsbú frá árinu 1986. Hann hefur nú áhyggjur af framtíðinni. mbl.is/Árni Sæberg Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Minkar lausir í Mosfellsdal Aðgerðum í Mosfellsdal miðar vel áfram Börn verði ekki látin sofa úti í vögnum Segir málið óvenjulegt: Kæra á leiðinni „Alvarlegt brot gegn velferð þessara dýra“ Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ » Fleiri tengdar fréttir Gríðarleg vinna stóð enn yfir á Dalsbúinu í Mosfellsdal við að safna saman minkum sem þar ganga um lausir er blaðamann bar að garði síðdegis í gær. Brotist var inn í búið aðfaranótt miðvikudags og þúsundum minka sleppt þaðan út úr búrum sínum. Hinn 82 ára gamli Ásgeir Pétursson, sem rekið hefur búið síðan 1986, segir að vinnan við að safna minkunum saman muni standa yfir látlaust næstu dagana. Blessunarlega hefur loðdýraræktandinn fengið góða aðstoð frá fyrrverandi minkabændum á Suðurlandi en fimm minkabú hættu þar starfsemi í fyrra og er Dalsbúið því eina búið sem enn er starfrækt hér á landi. Enn hefur enginn verið handtekinn vegna innbrotsins en Hildur Rún Björnsdóttir lögreglufulltrúi segir að óhjákvæmilega vakni sú hugsun að innbrotið tengist tveimur öðrum sambærilegum innbrotum að undanförnu; í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí og alífuglabú Reykjabúsins í Mosfellsbæ í júní. Enn eru minkar um öll gólf í búinu og ganga þeir einnig lausir um lóð Dalsbúsins en um 8.000 minkum var hleypt úr úr búrum sínum. mbl.is/Árni Sæberg Löggan beðið hann að leita Í fyrri innbrotunum tveimur var í báðum tilvikum skilið eftir bréf á vettvangi þar sem innbrotsaðilarnir útskýrðu hvernig þeir sæju fyrir sér að aðbúnaður dýra ætti að vera. Í Dalsbúinu hefur ekkert slíkt bréf fundist. „Við finnum ekkert bréf. Ég hef náttúrlega ekkert lúsleitað hérna úti um allt en ég er með þetta í huga vegna þess að lögreglan er búin að biðja mig að finna þetta en það virðist ekkert bréf hafa verið skilið eftir í búinu,“ segir Ásgeir. Sonur Ásgeirs, Pétur Þór, er harðduglegur og sér um rekstur búsins ásamt föður sínum. Hann er hér með minka í háfi. mbl.is/Árni Sæberg Opnuðu ekki búrin næst húsinu Segir Ásgeir það verða æ ljósara að innbrotið hafi verið þaulskipulagt og að þeir sem brutust inn hafi kunnað vel til verka. Ásgeir segir hópinn sem stóð að innbrotinu vera hryðjuverkasamtök en þess má geta að nokkur náttúru- og dýraverndunarsamtök hafa fordæmt innbrotið harðlega. „Þetta hefur verið virkilega vel skipulagt. Á ganginum hjá okkur eru búr sitt hvorum megin við og einn maður getur ekki opnað þrjú hundruð búr á hvorum stað á stuttum tíma. Ég held að það hafi verið tveir menn á hverjum gangi og að um það bil sex manns hafi verið að verki. Umgangurinn hérna er líka slíkur, þeir komu hérna og rústuðu öllu og fóru svo og opnuðu búrin.“ Unnar voru skemmdir á gildrum og háfum búsins til þess að gera Ásgeiri erfiðara fyrir að klófesta minkana á nýjan leik. Ekki öll búrin í búinu voru opnuð. Búrin sem eru staðsett næst íbúðarhúsi við búið voru enn óopnuð og segir Ásgeir það benda til þess að mennirnir sem brutust inn hafi kunnað vel til verka, þekkt aðstæður á búinu og undirbúið sig vel. „Þeir vissu af þessu húsi hérna. Þeir hafa ekki þorað að opna búrin næst því vegna þess að það er hávaði í þessum búrum og þeir vildu ekki vekja fólkið og vekja þannig athygli á sér.“ Einnig virðist sem innbrotsaðilarnir hafi ekki ekið alla leið að húsinu heldur lagt bílum sínum í einhverri fjarlægð og gengið að húsinu til þess að vekja ekki fólkið á búinu með því að aka inn hlaðið. Óljóst hve margir minkar lifa af Ekki öllum minkunum var því sleppt úr búrum sínum, um 8.000 minkum af 12.000 var sleppt út að sögn Ásgeirs. Flestir þeirra eru enn við Dalsbúið og hefur annaðhvort verið komið aftur inn í búr eða eru enn lausir innan öryggisgirðingar í kringum búið. Mörg hundruð minkar hafa þó sloppið út fyrir og verið skotnir. Einhver dýr eru þó vafalaust komin á flakk en lögreglu barst tilkynning um að minkar hefðu sést við Skarhólabraut í Mosfellsbæ, í um fimm kílómetra fjarlægð frá Dalsbúinu. Ásgeir var fyrir innbrotið með 12.000 minka í búinu en óljóst er hve margir þeir eru nú. „Ég veit ekkert hve margir þeirra eiga eftir að lifa þetta af. Eins og staðan er í dag, þá er þetta allsherjartjón. Við eigum eftir að vinna gríðarlega mikið í því að leysa það hvernig við getum flokkað dýrin og svo komið þeim burt.“ Loðdýraræktandinn á Dalsbúinu segir þó að sama hvað þá muni verða uppskera í haust, hann muni halda ótrauður áfram í bili. „Ég á samt eftir að leita að öllum góðu lífdýrunum og finna góða hvolpa sem ég get sett í staðinn fyrir þau dýr sem ég finn ekki,“ segir Ásgeir. Leita leiða til að bjarga stofninum Eins og áður segir er Dalsbúið síðasta starfandi minkabú landsins. Ásgeir viðurkennir að innbrotið geri búinu erfitt fyrir og að í raun hafi verið lagður grunnur að því að eyðileggja það. Hefurðu áhyggjur af því að þú munir þurfa að hætta starfsemi hér? „Við erum með alls óskyld dýr núna í búrunum og þú getur rétt ímyndað þér hvernig ástandið verður eftir einn mánuð. Ég hef bara mjög miklar áhyggjur af þessu og hvernig ég geti eiginlega leyst þetta. Við þurfum að finna einhverja leið til þess að bjarga stofninum okkar.“ Fóðurstöð fyrir minka Dalsbúsins er staðsett við minkabúið og segir Ásgeir búið nota um 600 tonn af fóðri á ári hverju. „Þetta er bara 0,4% innflutt fóður. Þetta er allt saman framleitt hér heima og líka afgangar frá bakaríum, veisluþjónustum og öðru slíku.“ Það yrði gríðarlegt tjón fyrir Ásgeir ef búið myndi hætta starfsemi, enda hefur hann lagt mikið í það frá því að hann keypti búið árið 1986. „Hvernig eigum við að koma þessu í verð og hvernig eigum við að geta lifað á restinni hérna? Við erum búin að byggja upp starfsmannahús og hús fyrir okkur og erum með sex hektara af landi. Yrði þetta bara sett á einhverja brunaútsölu?“ Vill stórefla landbúnað Segir Ásgeir að bændur hafi margir hverjir áhyggjur af þróun mála í samfélaginu. Neikvætt umtal sé um bændur og stefna stjórnvalda sé þeim ekki hagfelld. Bændur hvaðanæva úr samfélaginu hafa síðustu tvo daga hringt í Ásgeir og viðrað áhyggjur sínar við hann. „Þeir sem halda blóðmerar hafa hringt í mig og þeir hafa miklar áhyggjur. Svínabændurnir hafa gríðarlegar áhyggjur og það sama má segja um kjúklinga- og kalkúnabændur. Þeir sem eru með sauðfé og beljur hafa kannski minni áhyggjur en þó einhverjar,“ segir Ásgeir. Einn forsvarsmanna Stjörnugríss, sem rekur svínabúið á Kjalarnesi sem brotist var inn í í maí, hafði samband við Ásgeir í gær og segir Ásgeir hann hafa lýst miklum áhyggjum af því hvernig samfélagið sé orðið og hvernig komið er fram við bændur. Ásgeir telur umtal sem þetta meðal þess sem skapi farveg fyrir hópa til þess að brjótast inn á bú og valda þar skaða, eins og hefur nú gerst þrívegis á undanförnum mánuðum. „Þú sérð afleiðingarnar af þessu strax, það eru þrjú bú farin hérna á skömmum tíma,“ segir Ásgeir. Hann segir nú brýnt að ráðist verði í átak til þess að efla landbúnaðinn hér á landi. „Við eigum nægt land til þess að fóðra alla hér á Íslandi, við ættum ekki að þurfa að kaupa neitt. Samt sem áður eru 70% af því sem við étum í dag innflutt. Hvaða þjóðaröryggi er í því? Ég er ekki hissa á því að vinstrimenn vilji núna ganga inn í Evrópusambandið til þess að fá bara mat hjá þeim ef allt myndi stoppa hér á landi,“ segir Ásgeir að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Minkar lausir í Mosfellsdal Aðgerðum í Mosfellsdal miðar vel áfram Börn verði ekki látin sofa úti í vögnum Segir málið óvenjulegt: Kæra á leiðinni „Alvarlegt brot gegn velferð þessara dýra“ Gríðarlegt tjón: „Þetta eru hryðjuverk“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Minkurinn tekur sér ekki frí yfir versló“ Myndskeið: Senda herlið til Ceuta vegna flóttafólks Þrjótarnir skildu ekki eftir bréf Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Njarðvíkingar styrkja sig Umræðan Hindranir og hagvöxtur í litlu hagkerfi Fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ríki ESB á móti varanlegum undanþágum Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Bandero siglir utan í skip Hvals Myndir: Bandero kominn til hafnar Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Inngrip auðveld innan landhelgi Var í afneitun vegna versnandi heilsu Myndir: Ísjakinn í Skagafirði bráðnar í kvöldsólinni Myndir: Bandero kominn til hafnar Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Bandero siglir utan í skip Hvals Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Allt að 18 stiga hiti og bjartviðri Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Gunnar Þórðarson er látinn Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Myndir: Megas lagður til hinstu hvílu Rændu heilum gámi af kampavíni Vélinni hlekktist á í lendingu: Situr pikkföst Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Íslendingum sendur tónni

Share this article