Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þorvaldur: Skýr skilaboð til FIFA

Read Full Article →

Íþróttir | HM í fótbolta | mbl | 31.7.2026 | 10:58 | Uppfært 11:45 Þorvaldur: Skýr skilaboð til FIFA Þorvaldur Örlygsson. Morgunblaðið/Óttar Geirsson Jóhann Ingi Hafþórsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Infantino og FIFA Einn nánasti maður Infantino segir upp FIFA svarar: Ætlum að halda áfram Evrópa ætlar að sniðganga HM KSÍ gæti fengið meira en fimm milljarða Evrópa gæti sniðgengið HM í fótbolta » Fleiri tengdar fréttir „Það hefur verið fjör í þessu,“ sagði Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ, í samtali við mbl.is um síðustu daga. Þorvaldur fundaði með öðrum forráðamönnum sambanda innan UEFA í gær um áform Gianni Infantino, forseta FIFA, að selja hlutabréf í HM til einkafjárfesta. Áformin hafa vakið hörð viðbrögð og UEFA hótað því að sniðganga HM í fótbolta hætti Infantino ekki við. Infantino sjálfur myndi hagnast mikið á sölunni. „UEFA bauð til neyðarfundar með öllum samböndum í Evrópu. Sá fundur var haldinn klukkan 13 að íslenskum tíma í gær. Hann var vegna áforma FIFA um að FIFA vilji fá einkafjárfesta inn í svokallað FIFA Forward enterprice, til að halda utan um viðskiptaréttindi HM. Þetta var góður fundur og mikil samstaða meðal allra sem þar voru mættir. Flestir tóku til máls og voru sammála UEFA og þeirri niðurstöðu sem kom úr þeim fundi,“ sagði Þorvaldur. Ósætti með vinnubrögðin Knattspyrnusambönd Evrópu eru ósátt við áform Infantinos og einnig upplýsingagjöf í kringum þau sem var lítil sem engin. „Vinnuferlið og stjórnunarhættir er það sem menn voru að ræða. Menn voru ekki upplýstir og líst ekki á þessa tillögu. Við vorum sammála um að þetta væri ekki gott fyrir knattspyrnuna. Þeir sem eru í stjórn FIFA og UEFA fengu ekki neinar upplýsingar um þessi mál. Við viljum ekki að fjárfestar og stórfyrirtæki geti með beinum og óbeinum hætti stjórnað fyrirkomulagi móta með ýmsum hætti. Knattspyrnusamböndin og félögin myndu missa tökin. Það er ekki eitthvað sem myndi hugnast UEFA,“ sagði Þorvaldur. Harðar aðgerðir UEFA hefur hótað að sniðganga mót á vegum FIFA, m.a. HM karla og kvenna, verði ekki hætt við áformin. „Við lýstum yfir stuðningi við harðar aðgerðir. Þetta voru skýr skilaboð til FIFA að stíga til hliðar með þessa ákvörðun. FIFA þarf á Evrópu að halda alveg eins og Evrópa þarf á FIFA að halda. Menn vildu koma því skýrt til skila að ef þetta heldur áfram munu menn hugleiða að sniðganga mót og leiki á vegum FIFA,“ sagði Þorvaldur og hélt áfram: „Við fylgjumst grannt með þróun mála og vonandi hættir FIFA við þessar fyrirætlanir. Við viljum að knattspyrnan verði áfram í höndum fólksins og okkar.“ En hver verða næstu skref? „Tíminn verður að leiða það í ljós. Við höfum verið að funda og ræða málin. Það hefur komið í ljós að stjórnarhættirnir hafa ekki verið góðir undanfarna daga, vikur og mánuði. Við skulum sjá hvað tíminn leiðir í ljós. KSÍ fylgist grannt með. Vonandi fáum við góða lausn sem allir verða sáttir með,“ sagði Þorvaldur. Frétt af mbl.is KSÍ gæti fengið meira en fimm milljarða Frétt af mbl.is UEFA svarar Infantino fullum hálsi Frétt af mbl.is Evrópa ætlar að sniðganga HM Frétt af mbl.is FIFA svarar: Ætlum að halda áfram Tengdar fréttir Infantino og FIFA Einn nánasti maður Infantino segir upp FIFA svarar: Ætlum að halda áfram Evrópa ætlar að sniðganga HM KSÍ gæti fengið meira en fimm milljarða Evrópa gæti sniðgengið HM í fótbolta » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Klopp stendur frammi fyrir ómögulegu verkefni Grealish: Hættið þessu bulli FIFA svarar: Ætlum að halda áfram Slot orðaður við starfið Ítalska goðsögnin látin Berjast erkifjendurnir um Rashford? Gamli landsliðsmaðurinn í nýtt starf Lygilegt hjá Sigurði og Færeyingunum Rekinn eftir fyrsta leik Liverpool gæti lent í vandræðum Mikil krísa hjá Ronaldo Ákærður fyrir nauðgun og rekinn frá félaginu Evrópa ætlar að sniðganga HM FH-ingurinn í bann fyrir „ofsalega framkomu“ Mega yfirgefa United Hættir óvænt með Newcastle Andlát goðsagnarinnar reyndist falsfrétt Tryggvi og Frederik hetjur Vals Liverpool lagði Hollywood-liðið Tekur óvænt við Newcastle Norðmaðurinn bráðkvaddur Missti aleiguna og kennir eiginmanninum um Óvænt skref hjá Ronaldo Tuttugu drengir týndust á Gothia Cup Meistarinn látinn aðeins 38 ára að aldri Sveindís birtir fleiri myndir af kærastanum Stórstjarnan aftur á spítala Trump um LeBron: „Kannski er hann rasisti“ Evrópa gæti sniðgengið HM í fótbolta Mikil krísa hjá Ronaldo Fleira áhugavert Fékk engar útskýringar á tvöfalt hærri kröfu Gunnar Þórðarson er látinn Hvalur 9 virðist stefna aftur út á haf Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Mest lesið Í gær Í vikunni Klopp stendur frammi fyrir ómögulegu verkefni Grealish: Hættið þessu bulli FIFA svarar: Ætlum að halda áfram Slot orðaður við starfið Ítalska goðsögnin látin Berjast erkifjendurnir um Rashford? Gamli landsliðsmaðurinn í nýtt starf Lygilegt hjá Sigurði og Færeyingunum Rekinn eftir fyrsta leik Liverpool gæti lent í vandræðum Mikil krísa hjá Ronaldo Ákærður fyrir nauðgun og rekinn frá félaginu Evrópa ætlar að sniðganga HM FH-ingurinn í bann fyrir „ofsalega framkomu“ Mega yfirgefa United Hættir óvænt með Newcastle Andlát goðsagnarinnar reyndist falsfrétt Tryggvi og Frederik hetjur Vals Liverpool lagði Hollywood-liðið Tekur óvænt við Newcastle Norðmaðurinn bráðkvaddur Missti aleiguna og kennir eiginmanninum um Óvænt skref hjá Ronaldo Tuttugu drengir týndust á Gothia Cup Meistarinn látinn aðeins 38 ára að aldri Sveindís birtir fleiri myndir af kærastanum Stórstjarnan aftur á spítala Trump um LeBron: „Kannski er hann rasisti“ Evrópa gæti sniðgengið HM í fótbolta Mikil krísa hjá Ronaldo Fleira áhugavert Gekkst undir lungnaígræðslu 27 ára Fékk engar útskýringar á tvöfalt hærri kröfu Hvalur 9 virðist stefna aftur út á haf „Verðum bara eitthvað peð þegar bjátar á“

Share this article