Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

UEFA segir Infantino hafa glatað trausti

Read Full Article →

Evrópska knattspyrnusambandið, UEFA, lýsir yfir vantrausti á Gianni Infantino, forseta FIFA, þrátt fyrir að hann hafi hætt við umdeildar hugmyndir sínar um að selja 21 prósent hlut í mótum FIFA. Infantino ætlaði að bjóða öllum 211 aðildarsamböndunum greiðslur upp á 40 milljónir bandaríkjadala ef þau samþykktu þessa hugmynd. Öll aðildarsambönd Evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA, samþykktu á neyðarfundi í vikunni að sniðganga HM í fótbolta ef áform Giannis Infantinos, forseta FIFA, um að selja 21% hlut í mótinu ná fram að ganga. Áformin gengu út á að FIFA myndi stofna dótturfélag sem allar tekjuberandi einingar sambandsins yrðu færðar undir, HM karla og kvenna, HM félagsliða og allt sem tengist markaðs- og ímyndarrétti þessara móta. Þar munar langmestu um HM karla. Infantino dró áformin til baka í gær. Þrátt fyrir það segir UEFA Infantino hafa glatað trausti. Í tilkynningu UEFA segir að núverandi forysta FIFA hafi ekki aðeins glatað trausti evrópska knattspyrnusambandsins heldur einnig trausti margra annarra innan fótboltafjölskyldunnar. Óvissa um framtíð Infantino hjá FIFA Infantino sækist eftir endurkjöri á þingi FIFA í mars en hann hefur verið forseti síðan 2016. Ekki var búist við mótframboði og flestar aðildaþjóðir FIFA voru þegar búnar að staðfesta að þær ætluðu að kjósa hann en það er ekkert sem bannar þeim að hætta við það, komi nýr frambjóðandi. Nokkrir hafa verið nefndir sem mögulegir frambjóðendur, þar á meðal Kanadamaðurinn Victor Montagliani, forseti knattspyrnusambands Mið- og Norður Ameríku, Bareininn Sheikh Salman bin Ebrahim Al Khalifa, forseti knattspyrnusambands Asíu, Katarinn Nasser Al-Khelaifi, forseti PSG og formaður Samtaka evrópskra fótboltafélaga og Slóveninn Aleksander Ceferin, forseti UEFA, þó ólíklegt þyki að hann hafi áhuga á stöðunni.

Share this article