- What: Fish processing plant upgrades and maintenance
- Impact: No security impact
Frá lokum loðnuvertíðar hafa staðið yfir viðamiklar og kostnaðarsamar framkvæmdir í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar. „Bæði hefur verið unnið að umbótum á starfsmannaaðstöðu og framleiðslubúnaði. Mikill fjöldi iðnaðarmanna hefur starfað við framkvæmdirnar og um þessar mundir er keppst við að gera fiskiðjuverið tilbúið fyrir makrílvinnslu sem gæti hafist í næstu viku.“ Miklar breytingar á starfsmannaaðstöðu „Breytingarnar á starfsmannaaðstöðunni eru umfangsmiklar og verður hún að öllu leyti betri og vistlegri að þeim loknum,“ segir Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, í viðtali á svn.is. Geir segir að verið sé að ljúka við nýtt og glæsilegt eldhús og eins hafi verið gerður stór matsalur og rúmgóð og notaleg setustofa. Ný vakúmpökkunarlína „Öll aðstaða fyrir starfsfólkið mun taka stakkaskiptum með þessum breytingum og verða hin besta. Í fiskiðjuverinu er unnið að margs konar endurbótum á framleiðslubúnaði,“ segir Geir. Þar nefnir hann fyrst nýja vakúmpökkunarlínu sem verið er að setja upp og sem kemur til viðbótar við þær sem fyrir eru. Auka sjálfvirkni við brettun „Þá skal nefna uppsetningu á nýjum búnaði til að auka sjálfvirkni við brettun en þegar við tölum um brettun er átt við röðun kassa á bretti áður en þeir fara yfir í frystigeymslu. Fyrir utan þetta er unnið að endurbótum á aðstöðu við flokkun og uppsetningu á nýrri og afkastamikilli pönnuþvottavél. Allar þessar framkvæmdir hafa gengið vel og verður spennandi að hefja makrílvinnsluna sem er á næsta leiti,” segir Geir Sigurpáll Hlöðversson á vefsíðu Síldarvinnslunnar.