Viðskipti | mbl | 31.7.2026 | 12:02 Sara Lind og Egill til Landsnets Sara Lind Guðbergsdóttir og Egill Tómasson. Ljósmynd/Landsnet Setja bókamerki Egill Tómasson og Sara Lind Guðbergsdóttir hafa verið ráðin forstöðumenn hjá Landsneti og hefja þau störf hjá fyrirtækinu á næstunni. Þetta segir í tilkynningu frá Landsneti. Segir þar enn fremur að Egill hafi verið ráðinn forstöðumaður stefnu og fjárfestinga og muni bera ábyrgð á stjórnun lykilverkefna þvert á fyrirtækið, svo sem innleiðingu nýrra áherslna eða stefnumála, ásamt forgangsröðun fjárfestinga, miðlægri áhættustýringu og umsjón sjálfbærnimála. Þá hefur Sara Lind verið ráðin forstöðumaður lögfræði og stjórnkerfa og mun bera ábyrgð á stjórnun lögfræðimála og rekstri og umbótum innri sem ytri stjórnkerfa. Egill kemur til Landsnets frá Landsvirkjun þar sem hann starfaði sem sérfræðingur í viðskiptagreiningu og þróun markaða á sviði sölu og þjónustu. Fyrir tíma sinn hjá viðskiptagreiningu starfaði Egill á sviði viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun við viðskiptaþróun, nýsköpun, verkefnastjórn, verkefnaþróun og ráðgjöf. Hann er með BSc-gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands, MSc-gráðu í kerfaverkfræði frá Boston-háskóla í Bandaríkjunum og doktorsgráðu í raforkuverkfræði með áherslu á greiningu raforkumarkaða, raforkuhagfræði og raforkuöryggi frá KTH í Stokkhólmi í Svíþjóð. Sara kemur til Landsnets frá svissneska fyrirtækinu Climeworks þar sem hún hefur starfað sem framkvæmdastjóri á Íslandi. Þar bar hún ábyrgð á þróun starfseminnar hér á landi, samskiptum við stjórnvöld og lykilhagsmunaaðila, stjórnarháttum og stefnumótun. Áður var Sara forstjóri Ríkiskaupa þar sem hún leiddi umfangsmiklar umbætur á starfsemi stofnunarinnar og stýrði þróun opinberra innkaupa með áherslu á skilvirkni, fagmennsku og aukið virði fyrir opinbera aðila. Hún er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og hefur jafnframt lokið framhaldsnámi á sviði leiðtogafærni, ákvarðanatöku og breytingastjórnunar. Hún situr í stjórn Gildis lífeyrissjóðs og hefur áður gegnt stjórnarstörfum, meðal annars hjá Vinnueftirlitinu. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson ESB-aðild og þversagnir stórríkisins Sigurður Már Jónsson Kínverjum fækkar um helming Fleira áhugavert Rændu heilum gámi af kampavíni Gekkst undir lungnaígræðslu 27 ára Fékk ný lungu eftir margra ára veikindi Inngrip auðveld innan landhelgi Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Málinu lokið með 35 milljóna króna sekt Stýrivextir áfram óbreyttir í Bandaríkjunum Hagnaður Arion dregst saman Gera engar frekari athugasemdir við Alvotech Stemningin stýrir sölu auglýsinga HS Orka kaupir Múlavirkjun Vöxtur í farþegum, tekjum og hagnaði Gjaldþrotum fjölgar á milli ára Aggan bætir öryggið í Færeyjum Viðskiptanefnd boðið til Indlands Málinu lokið með 35 milljóna króna sekt Hagnaður Arion dregst saman Stýrivextir áfram óbreyttir í Bandaríkjunum Gera engar frekari athugasemdir við Alvotech HS Orka kaupir Múlavirkjun Stemningin stýrir sölu auglýsinga Vöxtur í farþegum, tekjum og hagnaði Gjaldþrotum fjölgar á milli ára Origo-skiltið komið upp á Dalvegi: „Frábært húsnæði“ Séreignarsparnaður 100% í erlendum eignum Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða Málinu lokið með 35 milljóna króna sekt Gjaldþrotum fjölgar á milli ára HS Orka kaupir Múlavirkjun Vöxtur í farþegum, tekjum og hagnaði Greiðir upp síðasta skuldabréfið með ríkisábyrgð Gera engar frekari athugasemdir við Alvotech Origo-skiltið komið upp á Dalvegi: „Frábært húsnæði“ Ísinn selst enn í vætutíðinni Hagnaður Arion dregst saman Pistlar » Sigurður Már Jónsson ESB-aðild og þversagnir stórríkisins Sigurður Már Jónsson Kínverjum fækkar um helming Fleira áhugavert Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Mikið af mat fargað: „Ekki til fyrirmyndar“ Ríki ESB á móti varanlegum undanþágum Bandero siglir utan í skip Hvals Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Málinu lokið með 35 milljóna króna sekt Stýrivextir áfram óbreyttir í Bandaríkjunum Hagnaður Arion dregst saman Gera engar frekari athugasemdir við Alvotech Stemningin stýrir sölu auglýsinga HS Orka kaupir Múlavirkjun Vöxtur í farþegum, tekjum og hagnaði Gjaldþrotum fjölgar á milli ára Aggan bætir öryggið í Færeyjum Viðskiptanefnd boðið til Indlands Málinu lokið með 35 milljóna króna sekt Hagnaður Arion dregst saman Stýrivextir áfram óbreyttir í Bandaríkjunum Gera engar frekari athugasemdir við Alvotech HS Orka kaupir Múlavirkjun Stemningin stýrir sölu auglýsinga Vöxtur í farþegum, tekjum og hagnaði Gjaldþrotum fjölgar á milli ára Origo-skiltið komið upp á Dalvegi: „Frábært húsnæði“ Séreignarsparnaður 100% í erlendum eignum Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða Málinu lokið með 35 milljóna króna sekt Gjaldþrotum fjölgar á milli ára HS Orka kaupir Múlavirkjun Vöxtur í farþegum, tekjum og hagnaði Greiðir upp síðasta skuldabréfið með ríkisábyrgð Gera engar frekari athugasemdir við Alvotech Origo-skiltið komið upp á Dalvegi: „Frábært húsnæði“ Ísinn selst enn í vætutíðinni Hagnaður Arion dregst saman