Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Dreymdi um tannlæknastólinn

Read Full Article →

Sara Lind Guðbergsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður lögfræði og stjórnkerfa hjá Landsneti. Hún mun hefja störf í haust og kemur til með að bera ábyrgð á stjórnun lögfræðimála og rekstri og umbótum innri sem ytri stjórnkerfa. Hún kemur til Landsnets frá svissneska fyrirtækinu Climeworks þar sem hún hefur starfað sem framkvæmdastjóri á Íslandi. Sara er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og hefur jafnframt lokið framhaldsnámi á sviði leiðtogafærni, ákvarðanatöku og breytingastjórnunar. Það var hins vegar ekki lögfræðin sem lá fyrir snemma á lífsleiðinni. „Ég ætlaði alltaf að verða tannlæknir og mig hafði dreymt um það alveg frá því ég var fjögurra ára gömul. Mér finnst til dæmis fátt betra en lyktin inni hjá tannlækni og það að fara til tannlæknis er einn af hápunktum ársins í mínum huga.“ Nánar er fjallað um Söru í Viðskiptablaði vikunnar . Áskrifendur geta nálgast umfjöllunina í heild sinni hér .

Share this article