- What: Bill Gates invests in sustainable aviation fuel startup
- Impact: Advances in green aviation technology
Áhættufjárfestingarsjóðurinn Breakthrough Energy Ventures (BEV), sem Bill Gates stofnaði árið 2015 til að styðja þróun loftslagsvænnar tækni, hefur ráðist í sína fyrstu fjárfestingu í gegnum nýjan sjóð sem er ætlað að flýta markaðsvæðingu sjálfbærs flugeldsneytis, að því er fram kemur í umfjöllun Bloomberg um málið. Sjóðurinn leiddi 43 milljóna dala fjármögnunarlotu í bandaríska sprotafyrirtækið Lydian, að því er fram kemur í tilkynningu félaganna. Fjárfestingin kemur úr svonefndum oneworld BEV Fund, 150 milljóna dala sjóði sem var settur á laggirnar á síðasta ári með stuðningi flugfélaga á borð við Alaska Air Group, American Airlines og fleiri aðila í flugrekstri. Lydian þróar sjálfbært flugeldsneyti, svokallað e-SAF, sem er framleitt með endurnýjanlegri raforku úr vetni og koltvísýringi. Félagið segir nýja framleiðsluaðferð geta lækkað stofnkostnað framleiðslu um meira en helming miðað við sambærilegar lausnir. Takist það gæti það orðið mikilvægt skref í átt að því að gera slíkt eldsneyti samkeppnishæfara við hefðbundið flugeldsneyti. Flugiðnaðurinn lítur á sjálfbært flugeldsneyti sem lykilþátt í að draga úr kolefnislosun, en útbreiðsla þess hefur hingað til verið takmörkuð vegna mikils framleiðslukostnaðar. Samkvæmt greiningu BloombergNEF nam framleiðsla sjálfbærs flugeldsneytis um 1,9 milljónum tonna árið 2025, sem samsvarar aðeins um 0,6% af eftirspurn eftir flugeldsneyti á heimsvísu. Meginhluti sjálfbærs flugeldsneytis sem framleiddur er í dag byggist á fitu og jurtaolíum, en e-SAF hefur reynst dýrara í framleiðslu. BloombergNEF áætlar að meðalverð e-SAF til afhendingar á árunum 2026 til 2028 sé enn margfalt hærra en bæði hefðbundins sjálfbærs flugeldsneytis og jarðefnaeldsneytis fyrir flugvélar. Lydian rekur nú tilraunaverksmiðju í Boston og stefnir að því að taka fyrstu sýningarverksmiðju sína í atvinnurekstri í Texas árið 2028. Fyrirtækið gerir ráð fyrir að fyrsta fullbúna framleiðsluverksmiðjan taki til starfa árið 2030.