Minnisblað sem Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði í gær hvetur ríkisvaldið til samstarfs við einkageirann um byggingu fjölda eldflaugaskotpalla og gerir einkareknum geimferðafyrirtækjum kleift að skjóta mun fleiri eldflaugum á loft en verið hefur. John Leif Jørgensen, prófessor í geimvísindum við danska tækniháskólann DTU, segir í samtali við DR það einkum koma auðkýfingunum Elon Musk og Jeff Bezos til góða, sem báðir reka geimferðafyrirtæki, SpaceX og Blue Origin. Trump hefur lagt mikla áherslu á að bandarísk einkafyrirtæki sendi för út í geim sem Jørgensen segir birtingarmynd þess að minna fjármagni verði veitt geimferðastofnuninni NASA og í staðinn fært vinum hans í einkarekstri með opinberri fjárfestingaráætlun. Ekki megi afhenda einkafyrirtækjunum fjármagnið beint að mati Jørgensen prófessors. Stofnunin fái sama fjármagn í ár og í fyrra en viðbótarfjármagnið fari til einkafyrirtækja. Markmiðið er að unnt verði að senda þúsund eldflaugar út í geim fyrir árið 2030 sem er umtalsvert meira en í fyrra þegar þær voru 178. Það eru nánast þolmörk þeirra skotpalla sem til eru. Jørgensen segir Bezos vilja skjóta eldflaug á loft daglega og Musk allt að tveimur. Þá sé samanlagður fjöldinn nánast orðinn þúsund flaugar. Trump vill að Bandaríkjamenn lendi aftur á tunglinu fyrir 2028 auk þess sem í minnisblaðinu ætlast hann til að NASA stefni að mannaðri ferð til reikistjörnunnar Mars.