Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Skora á stjórnvöld að hækka laun listamanna

Read Full Article →

Innlent | mbl | 2.8.2026 | 13:45 Skora á stjórnvöld að hækka laun listamanna Margrét Tryggvadóttir er formaður Rithöfundarsambands Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Rithöfundasamband Íslands skorar á stjórnvöld að hækka fjárhæð starfslauna listamanna og segir núverandi fyrirkomulag skapa listafólki „fátæktargildru“. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar sambandsins. Frétt af mbl.is Mánuðum listamannalauna verður fjölgað Skapa fátæktargildru „Núgildandi lög um listamannalaun eru frá árinu 2009 og við gildistöku þeirra féllu eldri lög, nr. 35/1991, úr gildi. Sé lagasetning um listamannalaun skoðuð heildstætt er ljóst að vilji löggjafans hefur verið skýr í upphafi; að skapa stétt atvinnulistamanna á Íslandi. Í eldri lögunum voru starfslaun miðuð við laun fastráðinna háskólakennara, og upphaflegri reglugerð kemur fram að um laun sé að ræða og að ríkið greiði í lífeyrissjóð. Listafólk gat þó óskað eftir því að fá frekar verktakagreiðslu með álagi. Þegar núgildandi lög voru sett var þetta álag tekið út, enda átti upphæðin að duga fyrir bæði framfærslu listamanns og greiðslu launatengdra gjalda,“ segir í ályktuninni. „Þróunin hefur hins vegar orðið sú að þrátt fyrir að listamannalaun séu forsenda listsköpunar sjálfstætt starfandi listamanna á Íslandi, þá skapa þau fátæktargildru frekar en að veita listafólki fjárhagslega burði til að sinna list sinni. Í ár nemur mánaðarleg fjárhæð starfslauna listamanna 580.000 kr., og geta því listamenn vænst þess að um 370.000 kr. standi eftir þegar staðin hafa verið skil á sköttum og launatengdum gjöldum.“ Frétt af mbl.is Hafa enn ekki fengið listamannalaun Næstum ómögulegt að lifa á mannsæmandi launum Þá segir aukinheldur að í nýrri kjarakönnun komi fram að 88 prósent félagsmanna Rithöfundarsambandsins hafi fengið minna en tvær milljónir í höfundarlaun fyrir nýjustu bók sína árið sem hún kom út. Ofan á það bætist við að þeir sem hljóti listamannalaun í sex mánuði eða lengur megi aðeins vinna í 33 prósent starfshlutfalli við annað en list sína. Sú tilhögun geri listamönnum næstum ómögulegt að lifa á mannsæmandi lífi af launum sínum. Frétt af mbl.is Þessi fá listamannalaun 2026 Skora á íslensk stjórnvöld „Stjórnvöld hafa lýst vilja til að rýmka til um starfshlutfallið, en Rithöfundasamband Íslands bendir á að slík tilslökun myndi grafa undan þeim tilgangi starfslaunanna að gera listamönnum kleift að hafa list sína að aðalstarfi. Eðlilegri lausn á vanda listamanna væri að hækka launin. Þótt flest séu sammála um að listamannalaunakerfið sé það súrefni sem frumsköpun og listalíf í landinu þurfi til að þrífast, þá hefur það verið þynnt út á undanförnum árum, bæði vegna þess að greiðslur hafa ekki haldið í við almenna launaþróun í landinu, en einnig vegna þess að kerfið hefur ekki haldið í við mannfjölda. Auk þess er sá hópur sem sækir um nú mun stærri og fjölbreyttari en áður.“ Segir ályktuninni að sambandið skori á íslensk stjórnvöld að hætta að „svelta listamenn sína“ og hækka fjárhæð listamanna þannig að þau nái að minnsta kosti lágmarkslaunum, eða viðmiðum Skattsins um reiknað endurgjald sjálfstætt starfandi listamanna. Vísa til ádeilukvæðis frá 1913 Þá segir einnig í tilkynningunni: „Alþingi hefur tryggt skáldum og rithöfundum starfslaun allt frá 19. öld, og voru Benedikt Gröndal og Matthías Jochumson á meðal þeirra fyrstu sem hlutu skáldastyrk, eins og hann kallaðist þá. Launin hafa alltaf verið umdeild, eins og ádeilukvæði Þorsteins Gíslasonar frá árinu 1913 ber vitni um: Ég vil að skáldin séu svöng, mér sýnist hljóðakraftinn magni hin tómu garnagöng, en gömul reynsla að enginn söng fagurt með fullan kjaftinn.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skora á stjórnvöld að hækka laun listamanna Afturhvarf til fortíðar í Aðaldal Náði ekki að fylgja á eftir glæsilegum hring Glæsilegur stórsigur á EM „Ég er sjúk í mangó“ Umræðan Margbrotinn Ódysseifur Þrautir í Ceuta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll Myndir: Skipverjum Banderos hleypt út Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Sögðust hafa óskað eftir leyfi frá Landhelgisgæslunni Vopnalagabrot á Akureyri: Níu handteknir Myndir: Gjöreyðilagðist í brunanum Með eggvopn innan um þúsundir á FM95Blö Alelda sumarhús við Þingvallavatn Rekstur við krefjandi aðstæður Myndir: Akureyrarvöllur að fyllast Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Guðmundur Felix með krabbamein Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Koma til Íslands að vinna Andlát: Einar Sindrason „Vonast til að sjá allt að 10.000 manns“ Fer fram á brottvísun og endurkomubann Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Saklaus læknatími endaði með innlögn Nýjast á mbl.is » Skora á stjórnvöld að hækka laun listamanna Afturhvarf til fortíðar í Aðaldal Náði ekki að fylgja á eftir glæsilegum hring Glæsilegur stórsigur á EM „Ég er sjúk í mangó“ Umræðan Margbrotinn Ódysseifur Þrautir í Ceuta Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enginn skipverjanna í gæsluvarðhaldi „Guð gaf okkur gott veður“ Myndir: Skipverjum Banderos hleypt út Veittu Bandero eftirför í yfir fjórar klukkustundir Mest lesið Í gær Í vikunni Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Sögðust hafa óskað eftir leyfi frá Landhelgisgæslunni Vopnalagabrot á Akureyri: Níu handteknir Myndir: Gjöreyðilagðist í brunanum Með eggvopn innan um þúsundir á FM95Blö Alelda sumarhús við Þingvallavatn Rekstur við krefjandi aðstæður Myndir: Akureyrarvöllur að fyllast Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Catherine vildi ekki fylgja foreldrunum í dauðann Guðmundur Felix með krabbamein Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Koma til Íslands að vinna Andlát: Einar Sindrason „Vonast til að sjá allt að 10.000 manns“ Fer fram á brottvísun og endurkomubann Myndir: Vinna að því að klófesta lausa minka Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Bandero siglir utan í skip Hvals Íslendingum sendur tónninn Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Saklaus læknatími endaði með innlögn

Share this article