Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Heimtufrekt Rithöfundasamband

Read Full Article →

Rithöfundasamband Íslands, þar sem Margrét Tryggvadóttir gengir formennsku, skorar á stjórnvöld að hækka fjárhæð listamannalauna og segir núverandi fyrirkomulag skapa „fátæktargildru“ fyrir listafólk. Eftirminnilegt er þegar Margrét afrekaði, sennilega fyrst allra, að kjafta fjölmiðlamanninn Stefán Einar Stefánsson í kaf í útvarpsviðtali fyrir tæpu ári þar sem rætt var um listamannalaun. Í ályktun aðalfundar sambandsins er réttilega bent á að enginn verður ríkur af því einu að þiggja listamannalaun. Sem betur fer er það þó þannig að flestir listamenn hafa einnig aðrar tekjur af verkum sínum. Þættir á borð við hæfileika og hve eftirsóknarverð verkin eru ræður því hve háar þær tekjur eru. Geti listamaður ekki lifað mannsæmandi lífi af listsköpun sinni hlýtur það að vera sterk vísbending um að starfskraftar og hæfileikar viðkomandi séu betur nýttir á öðrum sviðum. Það er langt því frá sjálfsagt að listamenn fái yfir höfuð laun úr vösum skattgreiðenda og hvetja hrafnarnir Rithöfundasambandið til að hafa það í huga áður en þeir heimta sífellt meira. Huginn og Muninn er einn af föstum skoðanadálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article