Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Viðsnúningur hjá Smitten

Read Full Article →

Hugbúnaðarfyrirtækið Smitten ehf. hagnaðist um 63,9 milljónir króna á árinu 2025 eftir 72,9 milljóna króna tap árið áður. Á sama tíma jukust rekstrartekjur um 55% og námu 941,6 milljónum króna, eftir því sem fram kemur í nýjum ársreikningi félagsins. Tekjur félagsins hækkuðu því um 332 milljónir króna milli ára, úr 609,2 milljónum í 941,6 milljónir króna. Rekstrargjöld jukust einnig, einkum vegna hærri launakostnaðar og kostnaðar við selda þjónustu, en þó mun hægar en tekjurnar. Rekstrarhagnaður fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld var 53,3 milljónir króna, samanborið við 211,9 milljóna króna tap árið áður. Laun og launatengd gjöld námu 378 milljónum króna á árinu, samanborið við 328 milljónir árið áður. Ársverk voru hins vegar óbreytt, 21 talsins, sem þýðir að tekjur félagsins jukust verulega án þess að starfsmönnum fjölgaði. Handbært fé félagsins jókst um rúmar 152 milljónir króna á árinu og nam 428 milljónum króna í árslok, samanborið við 276 milljónir árið áður. Eigið fé hækkaði jafnframt úr 353 milljónum króna í 417 milljónir króna. Af öðrum tekjum félagsins námu tæpar 140 milljónir króna skattaívilnun vegna rannsókna og þróunar frá Rannís. Samkvæmt skýrslu stjórnar er hlutafé Smitten ehf. að fullu í eigu Smitten Technologies Inc. og er ekki lagt til að greiddur verði arður til hluthafa vegna rekstrarársins 2025.

Share this article