Ráðgjafarfyrirtækið Athygli, sem starfar á sviði almannatengsla, hagnaðist um 24,7 milljónir króna árið 2025, samanborið við 7,7 milljóna króna hagnað árið áður. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði út arður að fjárhæð 27 milljónir króna, að því er kemur fram í nýbirtum ársreikningi. Rekstrartekjur ráðgjafarfyrirtækisins jukust um 90% milli ára og námu 206 milljónum króna í fyrra, samanborið við 108 milljónir árið áður. Rekstrargjöld námu 176 milljónum króna og jukust um 79%. Þar af voru laun og tengd gjöld tæpar 108 milljónir króna. Á árinu störfuðu fimm starfsmenn hjá félaginu. Eignir námu 65 milljónum króna í árslok 2025 og eigið fé var um 30 milljónir króna. Eigendur Athygli eru Kolbeinn Marteinsson, Már Másson og Bryndís Nielsen. Kolbeinn og Már eiga sitthvorn 35% hlut og Bryndís 30% á 30% hlut. Meðal ráðgjafa sem starfa fyrir Athygli er Katrín Júlíusdóttir, fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar og framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF).