Íslandsmótið í golfi fer fram dagana 6. - 9. ágúst í Grafarvogi og haldið af Golfklúbbi Reykjavíkur í ár. Leikinn verður 72 holu höggleikur án forgjafar í karla- og kvennaflokki en niðurskurður verður eftir 36 holur. Alls verða 132 kylfingar sem taka þátt í Íslandsmótinu, 92 karlar og 40 konur. Íslandsmótið í golfi var síðast haldið á Korpúlfsstaðavelli árið 2013 en þá urðu Birgir Leifur Hafþórsson og Sunna Víðisdóttir Íslandsmeistarar. Titilvörn Dagbjarts og Guðrúnar Brár Íslandsmeistarar síðasta árs freista þess bæði að verja titla sína. Dagbjartur Sigurbrandsson varð Íslandsmeistari karla í fyrsta sinn í fyrra á meðan Guðrún Brá Björgvinsdóttir vann þá í kvennaflokki í fjórða sinn. Fleiri fyrrverandi Íslandsmeistarar verða þó við keppni eins og Axel Bóasson (2011, 2017, 2018), Kristján Þór Einarsson (2008, 2022), Aron Snær Júlíusson (2021, 2024), Guðmundur Ágúst Kristjánsson (2019), Logi Sigurðsson (2023), Þórdís Geirsdóttir (1987), Perla Sól Sigurbrandsdóttir (2022) og Ragnhildur Kristinsdóttir (2023). Sex nýir teigar verða notaðir. Ellefta holan er stærsta breytingin: nýr teigur færir upphafshöggið yfir ána. Karginn hefur einnig verið látinn vaxa á lykilsvæðum og völlurinn mun lengri en áður. Bílastæði fyrir áhorfendur verða við Egilshöll og Korputorg en gönguleiðir liggja að vellinum þaðan. Annars mun RÚV sýna beint frá þremur síðustu keppnisdögunum eins og undanfarin ár. Útsendingar RÚV ● Föstudagur 7. ágúst: 15:30-18:30. ● Laugardagur 8. ágúst: 15:00-17:45. ● Sunnudagur 9. ágúst: 14:30 til mótsloka. Jón Júlíus Karlsson og Ólafur Þór Ágústsson munu lýsa mótinu á RÚV. Hörður Magnússon verður svo á staðnum og tekur viðtöl.