„Korpúlfsstaðavöllur er einn af okkar bestu keppnisvöllum,“ sagði Jón Júlíus Karlsson, golflýsandi, um Íslandsmótið í golfi sem hefst á morgun. „Frábær golfvöllur fyrir Íslandsmótið í golfi og mótin sem hafa farið fram á Korpúlfsstaðavelli hafa verið mjög flott og spennandi. Þetta er golfvöllur sem ég veit að kylfingarnir hafa mjög gaman af að keppa á.“ Hvaða holur eru sérstaklega spennandi? Af 18 frábærum holum segir Jón Júlíus að þrjár geti reynst kylfingum sérstaklega mikilvægar; 11., 12. og 18. holan. Á morgun hefst Íslandsmótið í golfi og verða þrír síðustu keppnisdagarnir sýndir beint á RÚV. Jón Júlíus Karlsson mun lýsa mótinu og við fengum hann til að velja sínar uppáhaldsholur á Korpúlfsstaðavelli og spá fyrir um sigurvegara.Á morgun hefst Íslandsmótið í golfi og verða þrír síðustu keppnisdagarnir sýndir beint á RÚV. Jón Júlíus Karlsson mun lýsa mótinu og við fengum hann til að velja sínar uppáhaldsholur á Korpúlfsstaðavelli og spá fyrir um sigurvegara.Á morgun hefst Íslandsmótið í golfi og verða þrír síðustu keppnisdagarnir sýndir beint á RÚV. Jón Júlíus Karlsson mun lýsa mótinu og við fengum hann til að velja sínar uppáhaldsholur á Korpúlfsstaðavelli og spá fyrir um sigurvegara. Ómögulegt að spá í spilin 92 kylfingar keppa í karlaflokki á Íslandsmótinu og að mati Jóns eru nokkrir þeirra líklegir til afreka: „Dagbjartur Sigurbrandsson er auðvitað á heimavelli, hann er að verja titilinn. Það er ekki hægt að líta fram hjá árangri Arons Snæs Júlíussonar á tímabilinu, hann er búinn að vinna nánast öll mót sem hann hefur tekið þátt í og verið í baráttunni í þeim mótum sem hann hefur ekki unnið. Þannig að hann er mjög líklegur og getur orðið Íslandsmeistari í þriðja sinn.“ „Það eru að koma til baka sterkir leikmenn af Norrænu mótaröðinni, Hlynur Bergsson og fleiri kylfingar sem hafa verið að leika erlendis. Sömuleiðis Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Svo er auðvitað alltaf líklegt að Axel Bóasson verði á meðal efstu kylfinga ef það fer að blása því hann er gríðarlega högglangur og sterkur kylfingur í vindi. „Það er í raun ómögulegt að setja eitt nafn á blað yfir þann sem mun standa uppi sem sigurvegari karlamegin.“ Tveggja kylfinga barátta eða blanda fleiri sér í hana? Hjá konunum eru tvær líklegast til að hreppa þann stóra að mati Jóns Júlíusar: „Það er svona búist við einvígi milli Ragnhildar Kristinsdóttur, Íslandsmeistara 2023, og Guðrúnar Brár Björgvinsdóttur sem varð Íslandsmeistari í fyrra og getur orðið Íslandsmeistari í fimmta sinn.“ „Svo má búast við að Perla Sól Sigurbrandsdóttir verði líka þarna ofarlega. Hún er á heimavelli og er feikilegt efni. Hún getur orðið Íslandsmeistari í annað sinn, varð Íslandsmeistari í Vestmannaeyjum 2022. Og svo er að koma upp mjög efnilegur kylfingur úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar, Eva Kristinsdóttir, sem hefur nú verið að blanda sér í baráttuna og hefur verið að leika vel á tímabilinu.“