Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.8.2026 | 9:20 Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur Athæfi mannsins var aðeins talið brjóta gegn 202. gr. almennra hegningarlaga um bann við samræði gegn börnum yngri en 15 ára. mbl.is/Hákon Setja bókamerki Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í síðasta mánuði mann í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa haft ítrekað kynferðismök við stjúpsystur sína, sem þá var 13 ára að aldri. Maðurinn er af erlendu bergi brotinn en honum er gefið að sök að hafa með ólögmætri nauðung haft við hana samræði og önnur kynferðismök frá upphafi til enda ársins 2022. Þá var maðurinn einnig talinn hafa nýtt sér yfirburði sína gagnvart brotaþola vegna aldursmunar og yfirburðarstöðu sinnar, en hann var 18 ára þegar brotin voru framin. Upphaf kynna mannsins og brotaþola voru á samkomu á veitingastað þar sem þau hefðu borðað með föður ákærða, móður brotaþola og fleiri skyldmennum og að þau hafi skömmu síðar orðið vinir á samfélagsmiðlinum Facebook þar sem þau fóru að eiga í nánum samskiptum. Í samskiptum þar hafi stúlkan sagst vera á aldrinum 15 til 20 ára gömul. Hinn ákærði og stúlkan munu í upphafi átt í vinalegu sambandi og t.a.m. farið á „klúbb fyrir unglinga“ margsinnis. Við skýrslutöku sagði brotaþoli svo að þau ákærði hefðu fyrst gert eitthvað kynferðislegt saman í ágúst 2022, þegar hún hefði verið þrettán ára en að í öll þau skipti sem samræði hefði átt sér stað hefði hún veitt samþykki sitt fyrir því. Taldi stúlkuna sextán ára Samkvæmt almennum hegningarlögum er refsivert að hafa samræði eða önnur kynferðismök við barn sem er yngra en fimmtán ára en ákærði kvaðst ekki vita hver aldur brotaþola væri þegar brotin voru framin en gekkst jafnframt við því að hafa átt samræði við stúlkuna. Við skýrslutöku var maðurinn spurður hvort sú staðreynd, að stúlkan hafi verið í grunnskóla þegar brotin voru framin, hefðu ekki gefið vísbendingu um aldur hennar. Sagðist ákærði ekki hafa hugmynd um „hvernig skólarnir virka hérna“. Ákærði hefði fyrst uppgötvað aldur brotaþola þegar hann hefði farið í skýrslutöku hjá lögreglu vegna málsins en áður hefði hann talið hana sextán ára Samræðið ekki nauðgun Í dómnum kemur fram að brotaþoli sé í dag 17 ára og að hún og ákærði séu í dag par. Brotaþoli var spurð hvort hún teldi, þegar hún horfði til baka, að ákærði hefði á einhverjum tíma brotið kynferðislega gegn henni, en taldi hún svo ekki vera. Þá sagði hún jafnframt frumkvæði að kynferðislegum samskiptum hafa verið gagnkvæmt og að ákærði hefði aldrei beitt hana þrýstingi. Að mati dómsins var því ekkert sem benti til þess að samþykki stúlkunnar hefði ekki verið gilt. Maðurinn var ákærður fyrir brot gegn 202. grein almennra hegningarlaga, þar sem fjallað eru um samræði eða kynferðismök við barn yngra en fimmtán ára. Þá var hann einnig ákærður fyrir brot gegn 194. grein almennra hegningarlaga, sem varðar nauðgun. Niðurstaða dómsins var þó sú að þrátt fyrir að brotaþoli hafi logið til um aldur sinn hefði ákærði átt að ganga úr skugga um aldur hennar þegar kynmök þeirra hófust og var hann því sakfelldur fyrir brot gegn 202. greininni. Hann hafi þó ekki gerst sekur um nauðgun. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Landsliðskonan með tvennu í Noregi Newcastle lætur undan og samþykkir tilboð Arsenal Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur Samfylkingin enn stærsti flokkur landsins Neymar heitt í hamsi eftir leik í Brasilíu Umræðan Fólkið sem er okkur ósammála Dýraheilbrigði sem undirstaða matvælahagkerfisins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Drengjunum sleppt: Byssurnar sagðar leikföng Ekki rignt meira í rúm 40 ár Hleypur fyrir ketti í minningu hunds Minkagildrurnar tómar í morgun: Sjá til lands Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Verndar ekki kynlífsverkafólk Ný vatnslögn til Eyja Ógnuðu fólki: Annar með hamar og hinn öxi Faldi sig í vélarrými bíls og féll á götuna Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Aðstæður hvergi betri en á Rauðasandi Náðu myndskeiði af holu í höggi Birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann Konan er fundin Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Dularfullur ljósblettur í Barkárdal Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Neytendastofa sektar Parka og EasyPark „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Maðurinn er kominn í leitirnar Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Nýjast á mbl.is » Landsliðskonan með tvennu í Noregi Newcastle lætur undan og samþykkir tilboð Arsenal Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur Samfylkingin enn stærsti flokkur landsins Neymar heitt í hamsi eftir leik í Brasilíu Umræðan Fólkið sem er okkur ósammála Dýraheilbrigði sem undirstaða matvælahagkerfisins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ráðuneytið taki þátt í ESB-áróðri Eins og að ég væri í návist almættisins Handteknir með skotvopn á Akureyri Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Verndar ekki kynlífsverkafólk Ný vatnslögn til Eyja Ógnuðu fólki: Annar með hamar og hinn öxi Faldi sig í vélarrými bíls og féll á götuna Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Aðstæður hvergi betri en á Rauðasandi Náðu myndskeiði af holu í höggi Birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann Konan er fundin Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Dularfullur ljósblettur í Barkárdal Andlát: Heimir Hannesson Hitinn gæti farið upp í 20 stig í dag Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Umferðartakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu 12. ágúst Neytendastofa sektar Parka og EasyPark „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Maðurinn er kominn í leitirnar Íslensk stúlka hvarf í Óðinsvéum Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn

Share this article