Gengi hlutabréfa SpaceX hefur lækkað um tæp 11% í viðskiptum fyrir opnun markaða vestanhafs í dag. Fjárfestar hafa að sögn Financial Times áhyggjur af stórfelldum fjárfestingum Elons Musks í gervigreind og gagnaverum. Í fyrsta uppgjöri SpaceX eftir skráningu kom fram að tekjur annars ársfjórðungs námu 7,8 milljörðum dala, sem er 92% aukning frá árinu áður og vel yfir 6,82 milljarða spá greiningaraðila. Tap á fjórðungnum var um 541 milljón dala, mun minna en 2,12 milljarða spá. Fjárfestingar í gervigreind námu hins vegar nærri 16 milljörðum dala, tvöfölduðust milli ársfjórðunga og fóru langt fram úr væntingum. Fyrirtækið gerir ráð fyrir óbreyttum útgjöldum næstu tvo ársfjórðunga. SpaceX aflaði 86 milljarða dala í sögulegu hlutafjárútboði í júní. Gengi bréfanna rauk fyrst upp en hefur síðan nær helmingast frá því hámarki sem það náði um miðjan júní. Sjá einnig Gengi SpaceX fellur niður fyrir útboðsgengi Musk hyggst auka reiknigetu SpaceX úr tveimur gígavöttum í lok ársins í nær tíu gígavött fyrir árslok 2027. Hvert nýtt gígavatt kostar tugi milljarða dala, einkum vegna örflaga sem Musk segir að muni verða keyptar frá Nvidia. Við efri mörk áætlunarinnar myndu gagnaverin nota álíka mikið rafmagn og New York-borg á heitasta tíma sumars. Tekjur af gervigreind meira en þrefölduðust milli ársfjórðunga og námu 2,56 milljörðum dala. Stærstur hluti þeirra kemur frá útleigu á gagnaverum SpaceX til keppinauta á borð við Anthropic og Google. Sú leið eykur skammtímatekjur en takmarkar getu SpaceX til að þróa eigin gervigreindarlíkön. Fjármálastjóri SpaceX spáir yfir 100 milljörðum dala í árlegar tekjur fyrir árslok. Musk telur að árlegar tekjur félagsins geti náð 1.000 milljörðum dala fyrir lok áratugarins. Á afkomufundi félagsins sagði Musk að SpaceX hefði náð árangri í þróun fyrstu kynslóðar gagnavera á sporbraut, sem nefnast Starmind AI-1, og stefnt væri að því að hefja sendingar þeirra út í geim á næsta ári. Nýjustu Grok-líkönin eru þjálfuð á gögnum SpaceX, sem Musk telur veita þeim tæknilegt forskot. Hann sagði jafnframt að fjárfestar vanmætu möguleika Starlink, gervihnattanetþjónustu SpaceX. Skortsala hefur jafnframt aukist og nemur nú um 34% þeirra bréfa sem eru í viðskiptum. Þá er lok sölubanns starfsmanna (e. initial lock-up period), minni kaup vísitölusjóða en vænst var og vangaveltur um mögulegan samruna við Tesla sagt hafa áhrif á viðhorf fjárfesta til bréfanna. Sjá einnig Tesla skoðar sölu í Kína til að liðka fyrir samruna við SpaceX