Stjórn Donalds Trump hefur endurgreitt um 100 milljarða dala í tolla síðan Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði í febrúar að forsetanum hefði verið óheimilt að beita neyðarheimildum til að leggja tolla á viðskiptalönd. Þetta kemur fram í frétt Financial Times. Upphæðin nemur um 60% af þeim 165 milljörðum dala sem innheimtust vegna tollanna. Bandarísk tollyfirvöld greindu Alþjóðaviðskiptadómstóli Bandaríkjanna frá þessu í gær. Dómstóllinn hafði fyrirskipað tolla- og landamærastofnuninni CBP að afgreiða endurgreiðslurnar eftir niðurstöðu Hæstaréttar. Sjá einnig Himinháar endurgreiðslukröfur vegna tolla Endurgreiðslurnar hafa gengið mun hraðar en stjórnvöld gáfu upphaflega í skyn. Scott Bessent fjármálaráðherra sagði í febrúar að málaferli og greiðslur gætu tekið mörg ár. Donald Trump hefur jafnframt gagnrýnt Hæstarétt harðlega og fullyrt að niðurstaðan hafi kostað Bandaríkin billjónir dala. CBP sagði í greinargerð sinni að kröfur að andvirði rúmlega 128 milljarða dala hefðu þegar verið samþykktar til vinnslu. Því má búast við frekari endurgreiðslum á næstunni. Hraði afgreiðslunnar hefur komið lögfræðingum og sérfræðingum á óvart. Greint var frá því í síðasta mánuði að íslenski hjólaframleiðandinn Lauf Cycles hefði fengið innflutningstolla sem fyrirtækið greiddi í Bandaríkjunum endurgreidda. Sjá einnig Fengu Trump-tolla endurgreidda Þingmenn hafa gagnrýnt aðgerðir stjórnvalda og segja féð renna aðallega til stórfyrirtækja en skili sér sjaldan til neytenda og smáfyrirtækja sem í reynd báru tollkostnaðinn með hærra vöruverði eða sérstökum álagsgjöldum. Greg Casar, þingmaður Demókrata frá Texas, sagði að hver einasti dalur ætti að renna aftur til bandarískra neytenda. Aðeins skráðir innflutningsaðilar geta sótt um endurgreiðslu í nýju kerfi CBP. Smáfyrirtæki sem keyptu vörur af milliliðum falla því utan þess, þótt tollarnir hafi lent á þeim. Sum smáfyrirtæki segjast ekki vita hvernig sækja eigi um endurgreiðslur eða skorta bolmagn til þess. Á sama tíma reynir Trump-stjórnin að endurreisa tollakerfið á öðrum lagagrundvelli. Nýir tollar hafa verið lagðir á vörur frá meira en 60 hagkerfum. Að minnsta kosti þrjú dómsmál hafa þegar verið höfðuð gegn þeim.