Innviðaráðherra hefur á ný aukið aflaheimildir til strandveiða á yfirstandandi strandveiðitímabili með breytingu á reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins. Þar segir að með breytingunni sé aflamark þorsks til strandveiða aukið um 964 tonn, úr 13.350 tonnum í 14.314 tonn. Með þessu nemur heildarafli sem úthlutað verður til strandveiða upp úr sjó 15.664 tonnum árið 2026. „Þetta er í annað sinn í sumar sem innviðaráðherra tilkynnir um aukningu strandveiðiafla en í júní var aflamark þorsks hækkað um 2.700 tonn . Aukningin á rætur að rekja til niðurstöðu skiptimarkaðar með aflaheimildir. Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða eru 5,3% af leyfðum heildarafla í hverri tegund dregin frá og þeim aflaheimildum ráðstafað til tiltekinna úrræða, þar á meðal strandveiða, byggðakvóta, línuívilnunar o.fl. Tegundasamsetning þess afla sem dreginn er frá svarar ekki alltaf til þeirra tegunda sem úrræðin kalla á og er ráðherra því heimilt að skipta aflamagninu í aðrar tegundir á skiptimarkaði,“ segir á vef stjórnarráðsins . Þá segir að niðurstaða skiptimarkaðarins hafi skilaði meiri þorskaflaheimildum en gert hafi verið ráð fyrir í fyrri áætlun og nemi viðbótin tæpum 964 tonnum af óslægðum þorski. Innviðaráðherra hafi ákveðið að ráðstafa þessari viðbót til strandveiða á yfirstandandi tímabili.