Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Aflaheimildir til strandveiða auknar um nær þúsund tonn

Read Full Article →

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur undirritað breytingu á reglugerð um veiðar í atvinnuskyni. Aflaheimildir til strandveiða verða auknar upp í tæp þúsund tonn. Með því ættu strandveiðar að ná 48 dögum, skerðingarlaust. Þetta er í annað sinn í sumar sem stjórnvöld auka strandveiðiafla. Aukningin byggir á niðurstöðu skiptimarkaðar með aflaheimildir, að því er fram kemur á vef Stjórnarráðsins , en hún skilaði meiri þorskaflaheimildum en gert var ráð fyrir í fyrri áætlun. Inga segir breytinguna til komna vegna svokallaðs skiptimarkaðs með aflaheimildir. „Því að strandveiðarnar eru náttúrulega 5,3% af öllum útgefnum afla og þeir geta náttúrulega ekki kannski verið að veiða ýmsan annan fisk, kolmunna eða hvað eina annað sem við getum ekki, strandveiðimennirnir okkar eru ekki þar.“ Með breytingunni er aflamark þorsks til strandveiða aukið um 964 tonn eða úr 13.350 tonnum í 14.314 tonn. Þetta er í annað sinn í sumar sem ráðherra eykur við strandveiðiafla í sumar. Í júní var aflamark þorsks hækkað um 2.700 tonn.

Share this article