Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stjórn­enda­skipti hjá Ferða­skrif­stofu Ís­lands

Read Full Article →

Ingibjörg Elsa Eysteinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Úrvals Útsýnar. Samhliða ráðningu hennar tekur Tómas J. Gestsson við sem forstjóri Ferðaskrifstofu Íslands en Þórunn Reynisdóttir ákvað nýlega að láta af störfum sem forstjóri eftir ellefu ára starf. Tómas mun gegna starfi forstjóra samhliða því að stýra Heimsferðum, en hann hefur verið við stjórn þar í rúm 20 ár. Ingibjörg mun þá bera ábyrgð á framleiðslu og sölu ferða á vegum vörumerkjanna Úrvals Útsýnar, Sumarferða og Plúsferða. Hún hefur víðtæka reynslu af íslenskri ferðaþjónustu og af stjórnun, framleiðslu og sölu ferða. Sjá einnig Beint flug milli Íslands og Kína hefst í sumar „Það er mikil tilhlökkun að takast á við þetta verkefni. Vörumerki Ferðaskrifstofu Íslands eiga sér sterka stöðu og langa sögu. Við ætlum að byggja áfram á þeim grunni, efla vöruframboðið og sækja fram með þarfir og upplifun viðskiptavina að leiðarljósi,“ segir Ingibjörg. Tómas segir sömuleiðis að það séu spennandi tækifæri fram undan til að styrkja reksturinn og þróa fjölbreytt framboð félagsins. „Ferðaskrifstofa Íslands er eitt öflugasta fyrirtæki í ferðaþjónustu á Íslandi og býr að sterkum vörumerkjum, mikilli reynslu og öflugu starfsfólki.“

Share this article