Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Ég verð bara að leiðrétta þetta“

Read Full Article →

Innlent | Spursmál | mbl | 6.8.2026 | 8:15 „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Hnífjafnar fylkingar jás og neis Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Segir efni á vegum Já til að sjá ekki ritskoðað Fer aftur með rangt mál í myndbandi Já til að sjá Styttist í atkvæðagreiðslu hjá stofnunum og fangelsi » Fleiri tengdar fréttir Spursmál Nær ógerningur að fá ráðherra til að ræða ESB „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ #134. - Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi Af hverju taka við löstunum líka? #133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins? » Fleiri tengdar fréttir Hart takast þau Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og Jónas Hagan, einn forsprakka Já til að sjá-samtakanna, á í Spursmálum þegar Jónas vísar til greinar danska lögfræðingsins Torben M. Andersen sem birtist í Morgunblaðinu 29. júní síðastliðinn. Torben sat í norsku samninganefndinni þegar Noregur átti í aðildarviðræðum við Evrópusambandið árið 1994. Síðar var hann jafnframt ráðgjafi íslenskra stjórnvalda í aðildarferlinu sem hófst árið 2009. Í grein sinni heldur hann því meðal annars fram að Noregur hafi tryggt hlutdeild sína í helstu fiskistofnum með ákvæðum í aðildarsamningnum. Verður að leiðrétta Það er einmitt þeirri niðurstöðu sem Heiðrún mótmælir harðlega í Spursmálum. Hún segir Jónas byggja á rangri túlkun á grein Torbens og gengur svo langt að segja að Torben fari sjálfur rangt með staðreyndir um niðurstöðu norsku aðildarviðræðnanna. „Það er frábært að þú skulir nefna Torben og ég kannast ágætlega við Torben, fínn maður og var í samningaviðræðum þegar Noregur var í þeim. Ég verð hins vegar að leiðrétta þetta,“ segir Heiðrún. Jónas Hagan og Heiðrún Lind Marteinsdóttir tókust á um mögulegar aðildarviðræður Íslands við ESB. Þar kom til orðaskipta vegna greinar Torben M. Andersen sem birt var í Morgunblaðinu í lok júní. mbl.is/samsett mynd Segir samningsgögnin sýna annað Að sögn Heiðrúnar fóru Norðmenn fram á að reglan um hlutfallslegan stöðugleika og hlutdeild landsins í helstu nytjastofnum yrði fest í sjálfan aðildarsamninginn. Evrópusambandið hafi hins vegar hafnað þeirri kröfu. „Þetta er bara rangt. Það sem var í aðildarsamningi Noregs var að Evrópusambandið var tilbúið... Noregur vildi fá í sinn aðildarsamning að reglan um hlutfallslegan stöðugleika og hlutdeild Noregs í öllum helstu nytjastofnum yrði tiltekin í aðildarsamningi og Evrópusambandið hafnaði því,“ segir hún. Aðeins pólitísk yfirlýsing Þess í stað hafi Evrópusambandið aðeins verið tilbúið að gefa pólitíska yfirlýsingu um að reglan um hlutfallslegan stöðugleika yrði áfram höfð til hliðsjónar. Að mati Heiðrúnar er þar grundvallarmunur á, enda sé pólitísk yfirlýsing ekki sambærileg við lagalega bindandi ákvæði í aðildarsamningi. Hún bendir jafnframt á að í samningsdrögunum sem Norðmenn höfnuðu hafi verið gert ráð fyrir þriggja ára aðlögunartíma áður en takmörkunum á erlendu eignarhaldi í norskum sjávarútvegi yrði aflétt. „Þetta var samningurinn sem Norðmenn, eðli máls samkvæmt, höfnuðu. Þannig að ég verð bara að leiðrétta Torben, félaga minn, með þetta að þetta er rangt.“ Vill meta samninginn í heild Í kjölfarið spyr Stefán Einar Jónas Hagan hvort hann gæti stutt sambærilegan samning ef Ísland stæði frammi fyrir sömu niðurstöðu og Norðmenn gerðu á sínum tíma. Jónas tekur ekki afdráttarlausa afstöðu heldur segir að hugsanlegan aðildarsamning verði að meta í heild sinni. „Ég ætla ekki að segja já eða nei við slíkri spurningu,“ segir hann. Jónas ítrekar þó að full yfirráð yfir sjávarauðlindinni og orkumálum séu meðal þeirra atriða sem hann líti á sem ófrávíkjanlegar „rauðar línur“ í hugsanlegum aðildarsamningi. Orðaskiptin má sjá í meðfylgjandi myndskeiði úr Spursmálum en viðtalið í heild er aðgengilegt hér að neðan: Líflegar umræður á vettvangi Spursmála þar sem Stefán Einar Stefánsson ræðir við Jónas Hagan og Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur. mbl.is/María Matthíasdóttir Tengdar fréttir Ísland og ESB Hnífjafnar fylkingar jás og neis Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Segir efni á vegum Já til að sjá ekki ritskoðað Fer aftur með rangt mál í myndbandi Já til að sjá Styttist í atkvæðagreiðslu hjá stofnunum og fangelsi » Fleiri tengdar fréttir Spursmál Nær ógerningur að fá ráðherra til að ræða ESB „Það þarf bara meiri aga á vinnumarkaði“ #134. - Hart tekist á um vexti og atvinnuleysi Af hverju taka við löstunum líka? #133. - Hefði Kerecis orðið til innan Evrópusambandsins? » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skiptir um félag í Noregi Einn látinn eftir sprengingu á Kanaríeyjum „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Hvalreki í Laugardalinn Aðsend grein: Verjum vistkerfi hafsins Umræðan Þetta er einfaldlega rangt Rétt skal vera rétt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skýjað og súld vestan til en bjart fyrir austan Íslandsmeistari eftir aðeins átta æfingar Færri kostir við aðildarviðræður 964 tonnum bætt í strandveiðipottinn Mest lesið Í gær Í vikunni Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Hnífjafnar fylkingar jás og neis Enn tvö ár í að brúin yfir Ölfusá verði tekin í notkun NATO treystir á nýja tækni Á annað hundrað sótti heilsugæslu á Þjóðhátíð Fer aftur með rangt mál í myndbandi Já til að sjá Segir efni á vegum Já til að sjá ekki ritskoðað Tímamótaleiðangur í Dyngjufjöll og Öskju Ók fram af fjögurra metra hengju Uppblásið leiktæki tókst á loft með barni innanborðs Fer aftur með rangt mál í myndbandi Já til að sjá Maður í haldi vegna andláts í heimahúsi Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Verndar ekki kynlífsverkafólk Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Já í ágúst gæti fest Ísland í ESB Vígja hjón án tilskilinna réttinda Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn Nýjast á mbl.is » Skiptir um félag í Noregi Einn látinn eftir sprengingu á Kanaríeyjum „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Hvalreki í Laugardalinn Aðsend grein: Verjum vistkerfi hafsins Umræðan Þetta er einfaldlega rangt Rétt skal vera rétt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hnífjafnar fylkingar jás og neis Fjórir stungnir í Covent Garden: Kona handtekin Maður í haldi vegna andláts í heimahúsi Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Mest lesið Í gær Í vikunni Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Hnífjafnar fylkingar jás og neis Enn tvö ár í að brúin yfir Ölfusá verði tekin í notkun NATO treystir á nýja tækni Á annað hundrað sótti heilsugæslu á Þjóðhátíð Fer aftur með rangt mál í myndbandi Já til að sjá Segir efni á vegum Já til að sjá ekki ritskoðað Tímamótaleiðangur í Dyngjufjöll og Öskju Ók fram af fjögurra metra hengju Uppblásið leiktæki tókst á loft með barni innanborðs Fer aftur með rangt mál í myndbandi Já til að sjá Maður í haldi vegna andláts í heimahúsi Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Verndar ekki kynlífsverkafólk Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Já í ágúst gæti fest Ísland í ESB Vígja hjón án tilskilinna réttinda Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Gunnar Þórðarson er látinn

Share this article