Innlent | Spursmál | mbl | 6.9.2026 | 22:40 „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Kos segir 47% styðja aðild „Hreinlegast“ að afturkalla umsóknina Búum við sambærilegt ástand og í kalda stríðinu Eins og blaut tuska » Fleiri tengdar fréttir Spursmál Spursmál: Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu Leið eins og Jesú þegar niðurstöður lágu fyrir Flokkur fólksins gæti klofnað Utanríkisráðherra hafi vanrækt sambandið við Bandaríkin #141. - Uppgjörið » Fleiri tengdar fréttir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, hendir gaman að Össuri Skarphéðinssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra, vegna skrifa hans í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar og segir Össur reyna að beina athyglinni frá sigri gamals fóstbróður síns, Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands. Þetta kemur fram í Spursmálum þar sem Hannes ræðir meðal annars viðbrögð stuðningsmanna aðildar að Evrópusambandinu við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Össur hefur að undanförnu beint spjótum sínum að Hannesi og meðal annars gefið í skyn að hann sé orðinn nytsamur sakleysingi Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Hannes gefur lítið fyrir slíkar árásir. „Össur auðvitað er að reyna að leiða athyglina frá einu atriði,“ segir Hannes og rifjar upp að fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna hafi Össur skrifað um sinn „gamla fóstbróður“, Ólaf Ragnar Grímsson. Sagði arfleifðina undir Að sögn Hannesar hafði Össur haldið því fram að Ólafur Ragnar hefði lagt pólitíska arfleifð sína undir í kosningunum. Ef hann tapaði yrði arfleifðin snautleg en ynni hann væri um stórkostlegan sigur að ræða. „Síðan hefur hann tekið málið af dagskrá,“ segir Hannes. Hann telur skýringuna einfalda. „Hann getur ekki unnt sínum gamla fóstra, sínum fornvini, þess að segja að sigur hans hafi verið stórkostlegur. Þess vegna er hann að leiða bara athyglinni frá því með árásum á ýmsa aðra.“ Þar vísar Hannes meðal annars til sín sjálfs. „Til dæmis að ég, gamli kaldastríðshermaðurinn, að ég sé orðinn einhver agent fyrir Rússa.“ Umsjónarmaður Spursmála bendir þá Hannesi á að þetta kunni að vera klókindalegt hjá Össuri enda sé hann „refur í þessum efnum“. „Nei, heyrðu, það sjá allir í gegnum hann Össur. Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af því,“ svarar Hannes. Tekur ofan fyrir Ólafi Orðaskiptin leiða Hannes síðan að Ólafi Ragnari, sem hann segir gamlan pólitískan andstæðing sinn. Hann sé alls ekki þekktur fyrir að hafa verið stuðningsmaður fyrrverandi forsetans. Engu að síður eigi Ólafur Ragnar hrós skilið fyrir framgöngu sína í kosningabaráttunni. „Hann stóð sig alveg afburðavel í þessari kosningabaráttu,“ segir Hannes og kveðst telja að afstaða Ólafs hafi verið einlæg. Hann telur þar skipta máli að Ólafur Ragnar hafi ekki haft neinn persónulegan ávinning af því að blanda sér í baráttuna. Hann hafi þegar náð þeim frama sem hægt sé að sækjast eftir á opinberum vettvangi. Hannes segist jafnframt, þegar hann líti yfir stjórnmálaferil Ólafs, sjá ákveðinn rauðan þráð. „Hann hafi alltaf verið ungmennafélagsmaður. Kjörorð ungmennafélaganna var Íslandi allt. Hann var lærisveinn Jónasar frá Hriflu sem var, þrátt fyrir alla sína galla, eldheitur ættjarðarvinur.“ Segir sigurinn mikinn Hannes gengur svo lengra og segist reiðubúinn að segja það sem Össur hafi, að hans mati, ekki fengist til að viðurkenna. „Ég tek bara ofan fyrir Ólafi og ég segi þá það sem Össur hefur ekki fengist til að segja, að þetta var mikill sigur fyrir hann að stíga svona fram.“ Spurður hvort hann telji þannig að gamli Framsóknarmaðurinn í Ólafi Ragnari hafi brotist fram á efri árum svarar Hannes án þess að hika: „Já, nákvæmlega.“ Össur Skarphéðinsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson hafa lengi skylmst á íslenska þjóðarsviðinu. Sú rimma stendur enn. mbl.is/samsett mynd Tengdar fréttir Ísland og ESB Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu Kos segir 47% styðja aðild „Hreinlegast“ að afturkalla umsóknina Búum við sambærilegt ástand og í kalda stríðinu Eins og blaut tuska » Fleiri tengdar fréttir Spursmál Spursmál: Ráðast þarf í enn frekari hagræðingu Leið eins og Jesú þegar niðurstöður lágu fyrir Flokkur fólksins gæti klofnað Utanríkisráðherra hafi vanrækt sambandið við Bandaríkin #141. - Uppgjörið » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Stjörnupar í Selá í Vopnafirði „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Arteta: „Frábær leikur“ Myndir: Heiðruðu Gunnar Þórðarson með lófataki „Ég er góður gaur!“ Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hátt í 600 fíkniefnamál í fangelsunum tveimur „Stórhættuleg“ eftirför endaði á umferðareyju Fagnar sigri AfD: „Við munum endurheimta landið okkar“ Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Mest lesið Í gær Í vikunni Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ Frelsið að fara úr að ofan Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Fóru saman á lögreglustöðina og voru handteknir Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi Nýjast á mbl.is » Stjörnupar í Selá í Vopnafirði „Það sjá allir í gegnum hann Össur“ Arteta: „Frábær leikur“ Myndir: Heiðruðu Gunnar Þórðarson með lófataki „Ég er góður gaur!“ Umræðan Örnefnafræðileg sjálfsdýrkun Bjartara fram undan Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Neikvætt eigið fé Heimildarinnar Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Vegfarendur varaðir við hvassviðri Mest lesið Í gær Í vikunni Kviknaði í húsinu út frá heita pottinum Tveir alvarlega slasaðir eftir þriggja bíla árekstur Vill stöðva frekari uppbyggingu í Skálafelli Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Ráðherra uppfylli óskalista óskipulagðrar lögreglu Nýi sveitarstjórinn verður fyrsti íbúinn Stal dósum vopnaður hníf Langþráð Íslandsferð loksins í höfn Andlát: Eyvindur P. Eiríksson Vestfjarðagoði Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Mórallinn farið niður úr öllu valdi“ Frelsið að fara úr að ofan Talsmenn Já þáðu fé frá Evrópusambandinu „Frekar ógeðfellt og lyktin er rosaleg“ Vegtenging milli Kópavogs og Reykjavíkur nálgast Kos segir 47% styðja aðild Fóru saman á lögreglustöðina og voru handteknir Ást við fyrstu sýn á Klapparstíg Fjórfalt stærri kjallari en leyfilegt er Brugðist við niðurstöðunum Þrjú ungmenni látin eftir bílslys á Krýsuvíkurvegi Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Myndskeið tengd banaslysi til rannsóknar „Trend í gangi“ að stunda hraðakstur án bílbelta Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Fjögurra milljarða baðlón opnað í dag „Bakslag fyrir Brussel“ Stöðvaður á 190 km hraða Hyggja að níu breytingum á kílómetragjaldi