200 mílur | Morgunblaðið | 6.8.2026 | 16:15 Skipum fjölgar nú á makrílmiðunum Uppsjávarskip Eskju, Aðalsteinn Jónsson og Jón Kjartansson, veiða makríl í Síldarsmugunni. mbl.is/Sigurður Bogi Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Makrílveiðar Þéttleiki makríls og útbreiðsla kolmunna aukist Segir Færeyinga beita sér gegn íslenskum hagsmunum Vill semja upp á nýtt Ekki sjálfbært samkomulag um makríl Óskar þess að ríkisstjórnin láti Eyjamenn í friði » Fleiri tengdar fréttir Makrílvertíðin er hafin en Eskja á Eskifirði og Samherji á Akureyri sendu fyrstu skipin af stað fyrir helgi. Útgerðirnar eru í samstarfi um vinnslu afla í uppsjávarhúsi Eskju á Eskifirði og fyrstu förmunum var landað úr Jóni Kjartanssyni SU frá Eskju og Margréti EA frá Samherja. Byrjað var að kasta suðaustur af landinu og samanlagt fengu skipin um það bil 90 tonn. „Við byrjuðum fyrir verslunarmannahelgi að veiða, vorum að veiða í íslensku lögsögunni,“ segir Páll Snorrason, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs Eskju, en skipin hófu veiðar í Rósagarðinum svonefnda. „Við erum með mestu heimildirnar í ár þannig að það er svona mesti þrýstingurinn á okkar skip og Samherja að byrja,“ bætir hann við, en veiðiheimildir Eskju eru 6.500 tonn. „Það var ekki mikið þar en svo fóru þeir út í Smugu og eru búnir að vera þar. Núna eru svona fyrstu farmarnir að streyma í land.“ Þegar rætt var við Pál um miðjan dag í gær var Vilhelm Þorsteinsson EA, uppsjávarskip Samherja, að landa 760 tonnum af hreinum makríl á Eskifirði og skip Eskju, Aðalsteinn Jónsson SU, á landleið með 800 tonn. Það tekur skipin um það bil sólarhring að sigla með aflann rúmar 300 sjómílur úr Síldarsmugunni en veiðisvæðið er á milli Noregs og Íslands, nokkuð norðan við Færeyjar. Páll segir að mörg markaðssvæði sækist eftir makríl. mbl.is/Árni Sæberg Styrkur í fjöldanum Uppsjávarskip annarra íslenskra útgerða eru þegar farin að tínast á miðin og Páll segir að veiðarnar muni ganga betur fyrir sig þegar þau eru orðin sem flest því það felist styrkur í fjöldanum. „Það eru fá íslensk skip á miðunum eins og er. Það er mikið af rússneskum togurum eins og alltaf og það eru einhver grænlensk skip líka en tiltölulega fáir Íslendingar og Færeyingarnir eru ekki þarna núna,“ útskýrir hann. „Þetta er svo rosalega stórt hafsvæði og það verður betra þegar það koma fleiri skip. Þá fara menn að leita meira og finna betur makrílinn.“ Sá fiskur sem búið er að landa kemur vel út að sögn Páls. „Gæði fisksins eru ágæt og það er verið að heilfrysta allt saman,“ segir hann. Í vinnslu Eskju sé nú starfað á tvískiptum 12 tíma vöktum og unnin séu hátt í 800 tonn á sólarhring. Fiskinn sem fékkst í íslensku lögsögunni segir Páll hafa verið einstaklega gæðalegan. „Það voru þessi fyrstu 90 tonn. Þetta var allt 500-plús gramma fiskur,“ segir Páll. „Við höfum séð það áður að fiskur sem leitar hérna í íslensku lögsöguna er stærsti fiskurinn.“ Hyggjast ná sem mestu í ágúst Spurður að því hvert fiskurinn verði síðan seldur segir Páll að mörg markaðssvæði sækist eftir makríl. „Það er í Asíu, Austur-Evrópu, jafnvel Egyptalandi. Þetta er vara sem er mjög þekkt alls staðar í heiminum og mikið markaðsaðgengi,“ segir Páll. „Við erum hins vegar bara rétt byrjaðir að framleiða og nú förum við að sýna okkar viðskiptavinum fisk.“ Páll segir að stefnt sé að því að veiða lungann af makrílnum fyrir ágústlok en að vertíðin geti hæglega teygst lengra, eða fram í september. Eftir 10. september muni hins vegar opnast fyrir það sem eftir er af heimildinni og þá geti skipin veitt í norskri lögsögu. Það er samkvæmt nýlegu makrílsamkomulagi sem undirritað var í desember 2025. Frétt af mbl.is Hvað stendur í makrílsamkomulaginu? Tengdar fréttir Makrílveiðar Þéttleiki makríls og útbreiðsla kolmunna aukist Segir Færeyinga beita sér gegn íslenskum hagsmunum Vill semja upp á nýtt Ekki sjálfbært samkomulag um makríl Óskar þess að ríkisstjórnin láti Eyjamenn í friði » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Gæti tekið vikur vegna mismunandi þjóðerna Þéttleiki makríls og útbreiðsla kolmunna aukist Litið til almannaöryggis vegna brottvísunar 964 tonnum bætt í strandveiðipottinn Getur tekið nokkrar vikur að vísa fólkinu úr landi Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Einar Örn nýr forstjóri First Water Landselum fækkað um 70% frá fyrstu talningu Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Strandveiðivertíðin gæti náð 43 dögum Birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann 964 tonnum bætt í strandveiðipottinn Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Getur tekið nokkrar vikur að vísa fólkinu úr landi Einar Örn nýr forstjóri First Water Landselum fækkað um 70% frá fyrstu talningu Strandveiðivertíðin gæti náð 43 dögum Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Skipverjarnir frjálsir ferða sinna Brátt hafa átta skip af þrettán verið afhent Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Sögðust hafa óskað eftir leyfi frá Landhelgisgæslunni Myndskeið: Þegar stjórn Banderos var tekin yfir Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Inngrip auðveld innan landhelgi Höfnuðu Bandero á grundvelli áhættumats Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Fleira áhugavert Telja undanþágur frá landbúnaðarstefnu ósennilegar Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Íslandsmeistari eftir aðeins átta æfingar „Gervigreindin gæti gert usla í meðalmennskunni“ Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 6.8.26 640,15 kr/kg Þorskur, slægður 6.8.26 725,95 kr/kg Ýsa, óslægð 6.8.26 578,78 kr/kg Ýsa, slægð 6.8.26 443,90 kr/kg Ufsi, óslægður 6.8.26 212,54 kr/kg Ufsi, slægður 6.8.26 317,12 kr/kg Djúpkarfi 5.8.26 331,00 kr/kg Gullkarfi 6.8.26 394,73 kr/kg Litli karfi 5.8.26 20,00 kr/kg Blálanga, óslægð 6.8.26 299,25 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 6.8.26 Sædís EA 54 Handfæri Þorskur 2.892 kg Ufsi 206 kg Karfi 4 kg Samtals 3.102 kg 6.8.26 Óli Óla EA 37 Handfæri Þorskur 831 kg Ufsi 73 kg Samtals 904 kg 6.8.26 Ingi Putti EA 18 Handfæri Þorskur 39 kg Ufsi 3 kg Samtals 42 kg 6.8.26 Siggi Gísla EA 255 Handfæri Þorskur 762 kg Ufsi 239 kg Samtals 1.001 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Gæti tekið vikur vegna mismunandi þjóðerna Þéttleiki makríls og útbreiðsla kolmunna aukist Litið til almannaöryggis vegna brottvísunar 964 tonnum bætt í strandveiðipottinn Getur tekið nokkrar vikur að vísa fólkinu úr landi Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Einar Örn nýr forstjóri First Water Landselum fækkað um 70% frá fyrstu talningu Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Strandveiðivertíðin gæti náð 43 dögum Birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann 964 tonnum bætt í strandveiðipottinn Skipstjóri Bandero: „Við komum í friði“ Getur tekið nokkrar vikur að vísa fólkinu úr landi Einar Örn nýr forstjóri First Water Landselum fækkað um 70% frá fyrstu talningu Strandveiðivertíðin gæti náð 43 dögum Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Skipverjarnir frjálsir ferða sinna Brátt hafa átta skip af þrettán verið afhent Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin og Gæslan tóku yfir stjórn Bandero Birta myndir frá vettvangi: „Aðgerðin heppnaðist“ Tölvupóstar streyma til forsætisráðherra Sögðust hafa óskað eftir leyfi frá Landhelgisgæslunni Myndskeið: Þegar stjórn Banderos var tekin yfir Myndskeið: „Nánast eins og í James Bond-mynd“ Inngrip auðveld innan landhelgi Höfnuðu Bandero á grundvelli áhættumats Forstjóri Gæslunnar mættur og brúin sígur Fleira áhugavert Ný skýrsla um „raunverulegar viðskiptaþjóðir Íslands“ Byggir ekki eingöngu á vísindalegu mati Hnífjafnar fylkingar jás og neis Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 6.8.26 640,15 kr/kg Þorskur, slægður 6.8.26 725,95 kr/kg Ýsa, óslægð 6.8.26 578,78 kr/kg Ýsa, slægð 6.8.26 443,90 kr/kg Ufsi, óslægður 6.8.26 212,54 kr/kg Ufsi, slægður 6.8.26 317,12 kr/kg Djúpkarfi 5.8.26 331,00 kr/kg Gullkarfi 6.8.26 394,73 kr/kg Litli karfi 5.8.26 20,00 kr/kg Blálanga, óslægð 6.8.26 299,25 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 6.8.26 Sædís EA 54 Handfæri Þorskur 2.892 kg Ufsi 206 kg Karfi 4 kg Samtals 3.102 kg 6.8.26 Óli Óla EA 37 Handfæri Þorskur 831 kg Ufsi 73 kg Samtals 904 kg 6.8.26 Ingi Putti EA 18 Handfæri Þorskur 39 kg Ufsi 3 kg Samtals 42 kg 6.8.26 Siggi Gísla EA 255 Handfæri Þorskur 762 kg Ufsi 239 kg Samtals 1.001 kg Skoða allar landanir »