Margrét EA, skip Samherja, kom í morgun með fyrsta makrílfarminn til Neskaupstaðar á þessari vertíð. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar þar sem segir aflinn hjá Margréti sé tæplega 700 tonn. Allt hafi verið tilbúið í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar til að taka á móti makrílnum til vinnslu. Lítilk árangur innan íslenskrar lögsögu Þá segir frá því að Síldarvinnsluskipin Beitir NK og Börkur NK hafi haldið til makrílveiða á mánudagskvöld. „Byrjuðu þau á að leita að makríl innan íslenskrar lögsögu suðaustur af landinu með litlum árangri og var þá stefnan tekin út í Síldarsmuguna svonefndu þar sem makrílveiði hefur verið upp á síðkastið,“ segir á svn.is. Margrét EA er sögð vera í veiðisamstarfi með Vilhelm Þorsteinssyni EA, Berki NK og Beiti NK. Veiðisamstarf ekki nýtt af nálinni „Slíkt veiðisamstarf er ekki nýtt af nálinni en íslensk makrílveiðiskip hófu slíkt samstarf fyrst sumarið 2020. Það sumar gekk makríllinn ekki upp á landgrunnið í ríkum mæli eins og hann hafði gert árin á undan en hélt sig þess í stað í Smugunni þannig að langt var að sækja hann. Við þessa breytingu hófu makrílskipin gjarnan veiðisamstarf,“ segir áfram á vef Síldarvinnslunnar. Skipin skiptist á að taka aflann um borð og sigla með hann hina löngu leið til lands. Samstarf í alla staði hagkvæmt og skynsamlegt „Þetta veiðisamstarf reyndist strax vel og ekkert fór á milli mála að það var í alla staði hagkvæmt og skynsamlegt. Öllu máli skiptir að aflinn komi sem ferskastur til vinnslu og veiðisamstarfið stuðlar einmitt að því.“ Beitir á landleið með 830 tonn Meðalþyngd makrílsis hjá Margrét er 430 grömm. „Ætti þessi makríll að henta vel til vinnslu og víst er að starfsfólk fiskiðjuversins er ánægt með að hefja hana af krafti. Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, lofar fiskinn úr Margréti og segir hann vera svakalega fallegan,“ segir á svn.is þar sem enn fremur er upplýst að Beitir sé á landleið með rúmlega 830 tonn og að í morgun hafi Börkur verið í góðri veið.