Innlent | Morgunblaðið | 6.8.2026 | 21:55 Kallar eftir heildstæðu kerfismati Erna Bjarnadóttir hefur skrifað athyglisverðar greinar um dýraheilbrigðiskerfið og mikilvægi þess að meta það heildstætt fyrir breytingar. mbl.is/Sigurður Bogi Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Lifandi dýr verði „rautt strik“ Telja undanþágur frá landbúnaðarstefnu ósennilegar Evran er engin allsherjarlausn „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Hnífjafnar fylkingar jás og neis » Fleiri tengdar fréttir Erna Bjarnadóttir hagfræðingur hefur skrifað töluvert um mikilvægi íslenska dýraheilbrigðiskerfisins. Umfjöllun hennar spannar allt frá dýravelferð og matvælaöryggi yfir í sýklalyfjaónæmi og nú síðast, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í gær, setti hún dýraheilbrigðisreglur í samhengi við efnahagslega innviði, þ.e. þýðingu varna gegn dýrasjúkdómum fyrir íslenska matvælaframleiðslu. Erna, sem starfaði í tvo áratugi hjá Bændasamtökunum, hefur skrifað margar greinar um ýmsa anga dýraheilbrigðis sem birst hafa víða. Hér verða þau skrif rifjuð upp og sett í samhengi við grein gærdagsins. Í skrifum sínum rifjar Erna m.a. upp að íslensk löggjöf um varnir gegn dýrasjúkdómum hafi mótast af sögulegri reynslu. Innflutningur lifandi búfjár hafi áður leitt til þess að alvarlegir sjúkdómar bárust til landsins, með tilheyrandi búsifjum. Í kjölfarið hafi verið byggt upp heildstætt varnarkerfi sem byggist ekki aðeins á takmörkunum á innflutningi lifandi dýra heldur einnig á ströngum reglum um innflutning erfðaefnis, sótthreinsun búnaðar, landamæraeftirliti, rekjanleika, vöktun smitsjúkdóma og skýrum heimildum stjórnvalda til þess að grípa til aðgerða þegar þörf krefur. Að hennar mati er styrkur kerfisins fólginn í samspili þessara þátta fremur en einstökum reglum. Erna Bjarnadóttir Erna hefur bent á að þessi nálgun rekist á grunnforsendur innri markaðar Evrópusambandsins, þar sem frjálst flæði vöru er ein af meginstoðum samstarfsins, en lifandi dýr teljast til vöru í lagalegum skilningi. Í skrifum sínum vísar hún jafnframt til rýniskýrslu framkvæmdastjórnar ESB frá síðustu aðildarviðræðum Íslands þar sem fram kom að íslenskar takmarkanir á innflutningi samrýmdust ekki reglum innri markaðarins og að leysa þyrfti úr þeim við hugsanlegar aðildarviðræður. Að mati Ernu snýst álitaefnið því ekki aðeins um hvort unnt sé að verja einstakar reglur heldur hvort unnt verði að viðhalda því heildstæða varnarkerfi sem íslensk dýraheilbrigðisvernd byggist á. Einn angi dýraheilbrigiðs snýr að sýklalyfjanotkun en Erna hefur vísað til þess að samkvæmt gögnum Evrópska eftirlitskerfisins (ESVAC) sé notkun sýklalyfja í íslenskri búfjárrækt meðal þeirrar minnstu sem þekkist í Evrópu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO), Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) og Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunin (WOAH) hafi um árabil hvatt til hóflegrar notkunar sýklalyfja, enda stuðli mikil notkun að þróun sýklalyfjaónæmis. Þá hefur hún jafnframt bent á að sífellt meiri athygli beinist nú að því að sýklalyfjaónæmisgen geti borist út í umhverfið með búfjáráburði og orðið hluti af örverusamfélögum í jarðvegi. Þótt rannsóknir á mikilvægi þessarar dreifingarleiðar standi enn yfir telur hún að lítil sýklalyfjanotkun sé ekki aðeins kostur fyrir landbúnaðinn heldur samfélagslegt verðmæti með tilliti til lýðheilsu og umhverfis. Í nýjustu grein Ernu veltir hún því upp hvort dýraheilbrigðiskerfið gegni í raun hlutverki innviðar í íslensku matvælahagkerfi. Líkt og aðrir innviðir geti það dregið úr óvissu og minnkað rekstraráhættu fyrirtækja með því að halda líkum á alvarlegum smitsjúkdómum í lágmarki. Hún bendir á að afleiðingar slíkra sjúkdóma séu þó annars eðlis en hefðbundnar rekstrarsveiflur þar sem tekjustraumur geti stöðvast skyndilega á meðan skuldbindingar haldist óbreyttar. Sem dæmi nefnir hún svokallaða hestapest árið 2010 sem hafði víðtæk áhrif á hestatengda starfsemi og sýndi að smitsjúkdómar geti haft áhrif langt út fyrir þann bústofn sem verður fyrir smiti. Ef slík áföll nái til stórra hluta frumframleiðslunnar geti áhrifin borist um alla virðiskeðju matvælaframleiðslunnar. Vegna þessa leggur Erna áherslu á að heildstætt mat liggi fyrir á áhrifum breytinga á dýraheilbrigðiskerfinu áður en ákvarðanir í þá veru eru teknar. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Lifandi dýr verði „rautt strik“ Telja undanþágur frá landbúnaðarstefnu ósennilegar Evran er engin allsherjarlausn „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Hnífjafnar fylkingar jás og neis » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kallar eftir heildstæðu kerfismati Markalaust í toppslagnum og sex mörk á Króknum Lifandi dýr verði „rautt strik“ ÍR-ingar með mikilvægan sigur Heilmikið ævintýri á handboltamótunum Umræðan Þetta er einfaldlega rangt Rétt skal vera rétt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Íran hótaði að slökkva á Persaflóasvæðinu „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ NATO treystir á nýja tækni Mest lesið Í gær Í vikunni Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Hnífjafnar fylkingar jás og neis Ók fram af fjögurra metra hengju Uppblásið leiktæki tókst á loft með barni innanborðs Fer aftur með rangt mál í myndbandi Já til að sjá Maður í haldi vegna andláts í heimahúsi Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Verndar ekki kynlífsverkafólk Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Já í ágúst gæti fest Ísland í ESB Vígja hjón án tilskilinna réttinda Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Nýjast á mbl.is » Kallar eftir heildstæðu kerfismati Markalaust í toppslagnum og sex mörk á Króknum Lifandi dýr verði „rautt strik“ ÍR-ingar með mikilvægan sigur Heilmikið ævintýri á handboltamótunum Umræðan Þetta er einfaldlega rangt Rétt skal vera rétt Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslandsmeistari eftir aðeins átta æfingar Hnífjafnar fylkingar jás og neis Skýjað og súld vestan til en bjart fyrir austan Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Mest lesið Í gær Í vikunni Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Hnífjafnar fylkingar jás og neis Ók fram af fjögurra metra hengju Uppblásið leiktæki tókst á loft með barni innanborðs Fer aftur með rangt mál í myndbandi Já til að sjá Maður í haldi vegna andláts í heimahúsi Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ Verndar ekki kynlífsverkafólk Dæmdur í fangelsi fyrir samræði við 13 ára stjúpsystur „Ég vona að nágrannarnir verði ekki mjög fúlir“ Já í ágúst gæti fest Ísland í ESB Vígja hjón án tilskilinna réttinda Andlát: Skúli Steinar Pétursson Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Bandero siglir utan í skip Hvals Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn