Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lífeyrissjóðir meðal stærstu eigenda

Read Full Article →

Hlutabréf Amaroq voru tekin til viðskipta á aðalmarkaði kauphallarinnar í London á föstudag, 31. júlí, eftir að breska fjármálaeftirlitið hafði samþykkt útboðslýsingu félagsins vegna skráningarinnar. Samhliða því var skráning hlutabréfanna á vaxtarmarkaðnum AIM felld niður. Allir 466,2 milljón útgefnir hlutar félagsins voru teknir til viðskipta á aðalmarkaðinum undir auðkenninu AMRQ. Bréfin eru áfram skráð á aðalmarkaði Nasdaq Iceland Danski lífeyrissjóðurinn Industriens Pension var stærsti einstaki hluthafi Amaroq við skráninguna í London. Sjóðurinn átti tæplega 21,6 milljónir hluta, sem jafngilti 4,63% hlut í félaginu. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins var næststærstur með 21,1 milljón hluta, eða 4,53%, og danski útflutnings- og fjárfestingasjóðurinn Danmarks Eksport- og Investeringsfond átti 4,14%. Eldur Ólafsson, stofnandi og forstjóri Amaroq, átti 16,6 milljónir hluta, eða 3,56%. Þá átti Livermore 3,16%, First Pecos 3,14% og Gildi lífeyrissjóður 3,06%. Þetta eru allir þeir eigendur sem Amaroq hafði vitneskju um að ættu að minnsta kosti 3% hlut í félaginu hinn 28. júlí. Samanlagt áttu þeir 122,2 milljónir af 466,2 milljónum útgefinna hluta félagsins, eða 26,22%. Enginn þeirra naut sérstakra atkvæðisréttinda og félagið kvaðst ekki vita til þess að einn aðili færi með yfirráð yfir því. Í útboðslýsingunni kemur einnig fram að stóru hluthafarnir hafi ekki skuldbundið sig til að halda bréfum sínum í tiltekinn tíma eftir skráninguna. Þeir geti því selt hluti sína hvenær sem er og umfangsmikil sala, eða væntingar um slíka sölu, gæti þrýst á gengi bréfanna. Þótt Amaroq hafi ekki aflað nýs fjár við skráninguna telur stjórnin að flutningurinn á aðalmarkaðinn geti aukið seljanleika bréfanna og bætt aðgang félagsins að fjármagnsmörkuðum. Frekari uppbygging Nalunaq, rannsóknarboranir og þróun annarra verkefna gætu síðar kallað á nýtt hlutafé eða aðra fjármögnun. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article