Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Amaroq hækkar eftir skráningu á aðal­markað Lundúna

Read Full Article →

Hlutabréfaverð Amaroq hefur hækkað um tæp 2% á breska hlutabréfamarkaðnum í og stendur í 107 pensum á hlut þegar fréttin er skrifuð, samanborið við 105 pens við lokun markað í gær. Hlutabréf félagsins voru tekin til skráningar í flokknum Equity Shares (Commercial Companies) á opinberum lista breska fjármálaeftirlitsins og til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar í London kl. 8:00 í morgun. Samhliða því var viðskiptum með hlutabréfin á AIM-vaxtamarkaðnum í London hætt. „Skráning á Aðalmarkað Kauphallarinnar í London markar mikilvægan áfanga í vegferð Amaroq sem starfandi námufélags og endurspeglar þann mikla árangur sem félagið hefur náð á undanförnum árum,“ segir Eldur Ólafsson , forstjóri Amaroq. „Eftir því sem við höldum áfram að þróa námuvinnslu, rannsóknarstarfsemi og uppbyggingu innviða okkar á Grænlandi teljum við að skráning á Aðalmarkað í Bretlandi sé rétti vettvangurinn til að styðja við næsta vaxtarskeið félagsins. Við teljum að skráningin muni auka sýnileika okkar meðal alþjóðlegra stofnanafjárfesta, bæta aðgengi að langtímafjármagni og vekja aukna athygli á þeim tækifærum sem við erum að skapa á Grænlandi.“ Félagið gefur hvorki út ný hlutabréf né önnur verðbréf í tengslum við skráninguna. Í tilkynningu sem Amaroq birti í morgun er haft eftir Jonathan Reynolds, viðskiptaráðherra Bretlands, að flutningur Amaroq á Aðalmarkað Kauphallarinnar í London sé „skýr traustsyfirlýsing til breska hagkerfisins og fjármagnsmarkaða okkar“. „Flutningurinn styrkir enn frekar stöðu London sem alþjóðlegrar fjárfestingarmiðstöðvar,“ segir Reynolds. „Þetta er stefna okkar um mikilvæg steinefni (Critical Minerals Strategy) í framkvæmd: að byggja upp metnaðarfullt alþjóðlegt samstarf sem styrkir efnahagslegt öryggi okkar og stuðlar að öflugri og sjálfbærari aðfangakeðjum fyrir mikilvæg steinefni.“

Share this article