Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ea­syJet samþykkir yfir­töku­til­boð Apollo

Read Full Article →

EasyJet verður tekið af hlutabréfamarkaði eftir rúmlega aldarfjórðung, gangi 5,7 milljarða punda yfirtaka bandaríska fjárfestingarfélagsins Apollo Capital Management eftir. Í frétt breksu fréttaveitunnar, The Times , kemur fram að stjórn lággjaldaflugfélagsins hafi samþykkt tilboð upp á 715 pens á hlut eftir að stofnandinn, Sir Stelios Haji-Ioannou, lýsti yfir stuðningi sínum á tilboðinu. Fjölskylda Haji-Ioannou er stærsti hluthafinn og fer með 15,3% eignarhlut. Fjölskyldan hyggst þó ekki selja heldur færa hlut sinn yfir í einkafélagið sem mun eiga easyJet eftir afskráningu. Aðrir hluthafar geta annaðhvort fengið 715 pens í reiðufé fyrir hvern hlut eða skipt bréfum sínum fyrir eignarhlut í nýja félaginu. Samkomulagið bindur enda á mánaðarlangar vangaveltur um framtíð easyJet og er ein af mörgum yfirtökum sem hafa átt sér stað undanfarið á fyrirtækjum sem skráð eru í London. Þróunin hefur aukið áhyggjur af minnkandi umfangi breska hlutabréfamarkaðarins. Stjórnin hafði áður náð bráðabirgðasamkomulagi við Castlelake um 690 pens á hlut, en félagið dró tilboð sitt til baka eftir hærra tilboð Apollo. Castlelake áskilur sér þó rétt til að snúa aftur. Fjölskylda Haji-Ioannou má jafnframt afturkalla stuðning sinn berist tilboð sem er 9% hærra. Sjá einnig Apollo hefur betur í baráttunni um EasyJet Áframhaldandi eign fjölskyldunnar auðveldar Apollo að uppfylla reglur ESB um kveða á um að flugfélög með rekstrarleyfi innan sambandsins séu í meirihlutaeigu evrópskra fjárfesta. Hlutabréf easyJet hækkuðu um 2,8% í gær. EasyJet var stofnað árið 1995 og skráð á markað árið 2000. Lágt gengi hlutabréfanna hefur gert félagið berskjaldað fyrir yfirtöku. Reksturinn hefur átt erfitt uppdráttar frá heimsfaraldrinum og stríðið í Mið-Austurlöndum hefur hækkað eldsneytiskostnað og seinkað bókunum ferðamanna.

Share this article