Innlent | mbl | 7.8.2026 | 11:58 Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Árásin átti að hafa átt sér stað í Kópavogi. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Sex ungir karlmenn voru sýknaðir af ákæru um sérstaklega hættulega líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll í Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómurinn gagnrýnir vinnubrögð lögreglu í málinu og segir annmarka á rannsókn hennar. Þá telur dómurinn ákæruvaldið ekki hafa axlað þá sönnunarbyrði sem á henni hvílir. Árásin átti að hafa átt sér stað í samkvæmi unglinga í Kópavogi í september 2021. Ákærðu voru á þeim tíma 16 til 19 ára gamlir. Einn ákærðu er Gabríel Douane Boama, sem hefur hlotið fjölda dóma, m.a. fyrir ofbeldisbrot. Í ákæru yfir mönnunum var þeim gefin sök að hafa ráðist inn í íbúð og veist með ofbeldi að fjórum mönnum með vopnum og bareflum. Þeir voru einnig sagðir hafa valdið tjóni á húsnæðinu. Mennirnir neituðu sök. Dómur féll í málinu í lok júlímánaðar en hann var birtur á vef héraðsdóms í gær. Töldu fjóra til fimmtán á vettvangi Í dómnum segir að framburður vitna sem voru á vettvangi hafi verið misvísandi. Báru þau fyrir sig að langt væri liðið frá atburðinum. Dómurinn telur þetta veikja sönnunarstöðu málsins og leiða til hættu á ruglingi og misskilningi. Vitnum bar til að mynda ekki saman um hversu margir hefðu komið á vettvang né heldur í hversu mörgum bifreiðum. Vitnin töldu að allt frá 4 til 5 hefðu ruðst inn í partýið og upp í 10 til 15. Í dómnum segir að fyrir liggi að átök hafi átt sér stað á vettvangi umrætt kvöld en ekki sé hafið yfir skynsaman vafa að ákærðu hafi verið þeir sem réðust inn í íbúðina. Tvö vitni báru um að upptaka hefði verið til af meintri árás. Í dómnum segir að ekki sé að sjá að þessu hafi verið fylgt eftir við rannsókn málsins. „Að mati dómsins er það annmarki á rannsókn málsins að ekki hafi verið gengið úr skugga um með óyggjandi hætti hvort til væri upptaka af atburðinum, sem tvö vitni báru fyrir dómi að hafa séð,“ segir í dómnum. „Þá verður ekki litið fram hjá því að slík upptaka hefði eftir atvikum getað leitt í ljós að gerendur í málinu hafi verið einhverjir aðrir en ákærðu, þótt engu verði slegið föstu um það.“ Löng rannsókn Í dómnum segir jafnframt að ákæruvaldinu beri að hraða meðferð máls eftir því sem kostur er og er það mat dómsins að það hafi ekki verið gert við rannsókn þessa máls með fullnægjandi hætti. Eins og áður segir voru mennirnir ákærðir fyrir árás sem átti að hafa átt sér stað árið 2021 en ákæra var gefin út í nóvember 2025. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Áhugi frá Ítalíu á Arsenal-manninum Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Bæjarstjóri í gæsluvarðhaldi vegna skógarelda Risastórt félag með mikinn metnað Fjölbreytt dagskrá Hinsegin daga í dag Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Meint brot á leikskóla á borði héraðssaksóknara „Evran gæti orðið meira en gildra“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ Pennavinurinn reyndist Churchill Kertum fleytt til minningar um fórnarlömbin Skipuð í dómaraembætti „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Virkjunarleyfi í höfn Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning Lifandi dýr verði „rautt strik“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar Nýjast á mbl.is » Áhugi frá Ítalíu á Arsenal-manninum Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Bæjarstjóri í gæsluvarðhaldi vegna skógarelda Risastórt félag með mikinn metnað Fjölbreytt dagskrá Hinsegin daga í dag Umræðan Tökum kíkinn af blinda auganu Heimurinn brennur minna – hvers vegna heyrum við aldrei af því? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Telja undanþágur frá landbúnaðarstefnu ósennilegar Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning „Það er meira eyðilagt, verið að grúska og tæta“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stöðvaður tvö kvöld í röð „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ Pennavinurinn reyndist Churchill Kertum fleytt til minningar um fórnarlömbin Skipuð í dómaraembætti „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Virkjunarleyfi í höfn Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning Lifandi dýr verði „rautt strik“ Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Þrettán sóttu um embætti forstjóra Svarar Margréti: „Hvaða peningum?“ „Ég verð bara að leiðrétta þetta“ Þorgerður krefst fullra yfirráða „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Þetta er mjög ógnvekjandi heimur“ Fimm Kólumbíumenn í haldi vegna kókaínsmygls Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Afhenti lögreglunni rauðtússaðan miða Saklaus læknatími endaði með innlögn Maðurinn er kominn í leitirnar