Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi, tveir hér á landi, einn í Póllandi og einn á Spáni, vegna rannsóknar lögreglu á andláti karlmanns á Kársnesi í Kópavogi um helgina. Rannsókn á frumstigi Samkvæmt heimildum fréttastofu er talið að árásarmennirnir hafi skvett sýru yfir manninn, auk þess að beita hann eggvopni. Elín Agnes Eide Kristínardóttir yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segist ekki vilja staðfesta þetta. Rannsóknin sé á frumstigi. Maðurinn sem lést var pólskur ríkisborgari á fimmtugsaldri. Hann var búsettur við Vallargerði í Kópavogi ásamt fjölskyldu sinni. „Lögreglan er kölluð að Vallargerði og þar er þá úti mikið slasaður maður með mikla áverka og var hann fluttur á slysadeild í kjölfarið. Það sem við vitum, eða teljum, er að eggvopni hafi verið beitt, að það hafi verið ráðist á hann inni í húsinu. En á þessu stigi máls vitum við ekkert frekar,“ segir Elín Agnes. Þrettán handteknir Þrettán voru handteknir í aðgerðum lögreglu og sitja fjórir í gæsluvarðhaldi. Tveir hér á landi, einn á Spáni og einn í Póllandi, samkvæmt heimildum fréttastofu. Nokkrir þeirra sem voru handteknir eru enn í haldi lögreglu – allir erlendir ríkisborgarar. Elín Agnes segist ekki vilja tjá sig um hvort árásin tengist skipulagðri brotastarfsemi. Þá vill hún ekki gefa upp hvort tengsl séu á milli hins látna og árásarmannanna. „Þetta er mikil vinna og margar skýrslur sem þarf að taka, margir sem þarf að tala við. Svo þarf í kjölfarið að teikna það upp og sjá hver staðan er.“