Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Einkunnir tíundubekkinga í tölustöfum strax í vor

Read Full Article →

Einkunnir tíundubekkinga í grunnskólum verða gefnar í tölustöfum strax næsta vor. Á skólaárinu þar á eftir verður sama breyting innleidd í lokamat 4. og 7. bekkjar. Samhliða því verður ráðist í endurskoðun á aðalnámskrá með áherslu á skýrari miðlæg viðmið um þá þekkingu, leikni og hæfni sem nemendur eiga að hafa náð á tilteknum skólastigum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu . Talsverð umræða hefur verið um einkunnagjöf í grunnskólum síðustu misseri. Í könnun Maskínu, sem var unnin í vetur, kom fram að 88% landsmanna vildu að einkunnir væru gefnar í tölustöfum en aðeins 2,6% vildu halda í bókstafina. Grunnskólinn á Dalvík.RÚV / Kristófer Óli Birkisson

Share this article