Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dagbjartur bætir í og Guðrún Brá hrifsaði til sín toppsætið

Read Full Article →

Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir leiða eftir annan hring Íslandsmótsins í golfi. Dagbjartur jók enn á forskot sitt eftir fyrsta daginn og er nú á átta höggum undir pari, þremur á undan næsta manni. Guðrún Brá skákaði Elsu Mareni Steinarsdóttur sem átti frábæran fyrsta dag. Guðrún er nú með tveggja högga forskot en er á -3 eftir daginn, en var á -1 eftir fyrsta daginn. Dagbjartur og Guðrún Brá eru ríkjandi Íslandsmeistarar. Dagbjartur leiddi karlaflokkinn eftir fyrsta hring og hélt uppteknum hætti. Dagbjartur hafði þriggja högga forskot á Tómas Eiríksson Hjaltested og Arnór Tjörva Þórsson í byrjun dags. Dagbjartur byrjaði daginn á fugli á fyrstu holu. Á fyrri níu var hann með einn skolla, fimm pör og þrjá fugla og var kominn á sjö högg undir pari. Hann tapaði höggi með skolla á tíundu holu en var ekki lengi að vinna það upp því á þeirri elleftu náði hann fugli. Að lokum lauk hann hringnum vel og endaði á átta undir pari. Tómas Eiriksson Hjaltested lék á pari í dag og Kristján Karl Guðjónsson var á einu höggi undir pari. Dagbjartur hefur því afgerandi forystu eftir fyrstu tvo dagana. Axel Bóasson er þrefaldur Íslandsmeistari og varð í öðru sæti í fyrra. Hann kom inn í hringinn á tveimur yfir pari og stóð í þremur yfir pari eftir fyrri níu í dag. Tólfta holan reyndist honum hins vegar afar erfið þar sem hann fór á níu höggum á þessari par fjögur holu. Niðurskurðurinn var 10 högg yfir pari. Svona er staðan eftir fyrsta hring karlamegin: Dagbjartur Sigurbrandsson: -8 högg Kristján Karl Guðjónsson: -3 högg Tómas Eiríksson Hjaltested: -3 högg Sigurður Bjarki Blumenstein: -2 högg Halldór Jóhannsson: -1 högg Aron Emil Gunnarsson: Par Aron Snær Júlíusson: Par Hjalti Hlíðberg Jónasson: +2 högg Róbert Smári Jónsson: +2 högg Kristófer Orri Þórðarson: +2 högg Guðrún hrifsaði til sín toppsætið 21 árs gamla Skagakonan Elsa Maren Steinardóttir fór inn í hringinn með þriggja högga forskot á Guðrúnu Brá. Elsa Maren var á fjórum undir pari og Guðrún Brá einu. Guðrún lék hins vegar vel og fór hringinn á tveimur undir pari en Elsa á þremur yfir. Því skiptust þær á sætum. Guðrún púttaði afar vel í dag og náði fjórum ernum og fór tvisvar á skolla. Elsa Maren byrjaði ekki eins vel í dag og fékk tvo skolla á fyrstu þremur holunum. Hún leiðrétti það hins vegar um hæl með fugli á fimmtu, sjöttu og sjöundu holu. Hún missti svo högg á tíundu á sama tíma og Guðrún Brá sótti. Guðrún Brá spilaði afar stöðugt í dag. Svona er staðan eftir fyrsta hring kvennamegin: Guðrún Brá Björgvinsdóttir: -3 högg Elsa Maren Steinarsdóttir: -1 högg Ragnhildur Kristinsdóttir: +4 högg Pamela Ósk Hjaltadóttir: +5 högg (eftir 15. holur) Eva Kristinsdóttir: +6 högg Perla Sól Sigurbrandsdóttir: +6 högg Embla Hrönn Hallsdóttir: +7 högg (eftir 16. holur) Heiða Rakel Rafnsdóttir: +7 högg (eftir 15. holur) Guðrún J. Nolan Þorsteinsdóttir: +8 högg Lilja Maren Jónsdóttir: +8 högg (eftir 14. holur) RÚV sýnir beint frá mótinu alla helgina og útsending frá þriðja hring hefst á morgun klukkan þrjú.

Share this article