Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íslandsmeistarinn efstur eftir fyrsta hring

Read Full Article →

Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur, núverandi Íslandsmeistari er í forystu að loknum fyrsta hring á Íslandsmótinu í golfi sem haldið er á Korpúlfsstaðavelli í Grafarvogi. Dagbjartur byrjaði mjög vel og fékk þrjá fugla á fyrstu fjórum holunum, en svo skolla á fimmtu holu en aftur fugl á sjöttu og sjöundu. Dagbjartur spilaði fyrsta hringinn á samtals fimm höggum undir pari og hefur tveggja högga forskot á næstu menn, Arnór Tjörva Þórsson og Tómas Eiríksson Hjaltested sem báðir koma úr GR. Sjá má stöðuna hér. Sýnt verður beint frá keppni á öðrum hring á morgun frá klukkan hálffjögur á RÚV.

Share this article