Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fimmtán ára fremstur manna á öðrum hring Íslandsmótsins

Read Full Article →

Íslandsmótið í golfi hélt áfram í dag og annar hringum mótsins var leikinn. Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir leiða en sá sem lék manna best í dag er hinn fimmtán ára gamli Halldór Jóhannsson ú Golklúbbnum Keili. Hann fór hring dagsins á 67 höggum eða fjórum höggum undir pari. Halldór byrjaði vel og náði fugli á annarri og þriðju holu. Þaðan lék hann á pari og sótti þriðja fugl dagsins á sjöundu holu. Eini skolli dagsins var á níundu holu en Halldór bætti það upp með fugli á 13. og 15. holu. Halldór er í fimmta sæti á samtals einu höggi undir pari nú þegar mótið er hálfnað. Hér má sjá stöðuna eftir daginn. RÚV sýnir beint frá þriðja hring mótsins á morgun klukkan 15:00 og svo lokahringinn á sunnudag.

Share this article