Hans Grundberg, sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna fyrir Jemen, varar við að umfangsmikil átök brjótist þar út að nýju í fyrsta skipti frá því viðkvæmt vopnahlé komst á í borgarastríðinu árið 2022. Spennan tók að magnast í júlí þegar stjórnarherinn gerði loftárásir á flugvöllinn í höfuðborginni Sanaa, sem uppreisnarsveitir Húta ráða yfir. Þá lýstu Hútar yfir hafnbanni á sádiarabískar hafnir. Síðan hafa Hútar ráðist á olíuflutningaskip á Rauðahafi og hert árásir sínar á stjórnarherinn. Sádar eru lykilbandamenn Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og hafa frá árinu 2015 farið fyrir fjölþjóðaher sem styður stjórnarherinn í Jemen. Hútar gerðu í gær flugskeytaárás á Sádi Arabíu þar sem ellefu almennir borgarar særðust. Tíðindi bárust einnig af því í gær að uppreisnarsveitir Húta hefðu drepið tugi hermanna stjórnarhersins í dróna- og eldflaugaárás. Borgarastríðið hefur staðið frá árinu 2014 þegar Hútar hertóku höfuðborgina Sanaa. Milljónir hafa hrakist á flótta innanlands og utan, innviðir eru í rúst og mikill skortur er á hreinu vatni og matvælum. Borgarastríðinu hefur verið lýst sem leppstríði milli Írans og Sádi Arabíu.
This article describes a geopolitical threat landscape, not a specific technical vulnerability, and therefore contains no information on a CVE, CVSS score, affected software versions, patches, or technical workarounds. It details escalating military conflict in Yemen, including attacks on critical infrastructure like ports and oil tankers, which could disrupt international supply chains and increase cyber threat activity. IT security professionals should be aware of the heightened risk of spillover cyber attacks, particularly from Iran-aligned groups, targeting organizations in allied nations.