- What: Belgian authorities seized nearly 19 tons of tobacco and 1 million illegal cigarettes
- Impact: Disruption of an organized smuggling operation
Belgískir tollgæslumenn gerðu upptæk næstum nítján tonn af tóbaki og um það bil milljón sígarettur í þaulskipulagðri, ólöglegri vindlingaverksmiðju. Reykingar mjög heilla rafta, segir í kvæðinu. Belgísk yfirvöld hafa fundið margar ólöglegar sígarettuverksmiður það sem af er ári.RÚV Anton Brink / Anton Brink RÚV Engan var að finna í húsnæðinu en viðskiptaráðuneytið segir 42 rúm hafa verið í húsinu og því talið að sá fjöldi hafi starfað við framleiðsluna. Belgísk yfirvöld hafa lokað ellefu ólöglegum sígarettuverksmiðjum það sem af er ári og gert um 180 milljónir vindlinga upptækar.