- What: Introduction of new boat
- Impact: Local maritime update
Ingibjörg SH 112 er nýkomin til landsins frá Noregi þar sem hún var smíðuð 2014. Hingað kemur hún frá Lofoten og hét þá Laurits H. Ingibjörg SH er 14,9 metrar á lengd, 6,3 metrar á breidd og 45,6 brúttótonn. Báturinn er hannaður fyrir snurvoð, línu og nót. Eigandi Ingibjargar SH er Breiðavík ehf. og heimahöfnin er Ólafsvík. Á samsettu myndinni hér að ofan má sjá Ingibjörgu SH á siglingu úti fyrir Hólmsbergi á leið sinni inn til Njarðvíkur í síðustu viku.