Björgunarskip, sem nú er í smíðum í Finnlandi, mun koma til Neskaupstaðar í júní á næsta ári. Skipið mun fá nafnið Hafbjörg og leysa núverandi Hafbjörgu af hólmi en hún hefur svo sannarlega skilað sínu með miklum sóma. Frá þessu segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Verið er að endurnýja björgunarskip á landinu og er nýja Hafbjörg eitt af 13 skipum sem smíðuð eru hjá fyrirtækinu Kewatec í Finnlandi. Þegar hefur finnska fyrirtækið afhent átta skip til Íslands. Þessi nýju skip eru fullkomnari en þau eldri á flestum sviðum. Þau eru 16,8 metrar að lengd og vel útbúin til dráttar en togkraftur þeirra er upp á fimm tonn. Þá eru tvær aðalvélar af gerðinni Scania í skipunum og eru þau með ganghraða upp á 30 hnúta. Þau eru jetdrifin með snjallstjórnun og svonefndu sýndarakkeri þannig að um nýjasta og fullkomnasta búnað er að ræða. Allur aðbúnaður fyrir áhöfn er eins og best gerist og einnig er gott rými fyrir sjúkling á börum. Hér er um að ræða nýja kynslóð björgunarskipa og með tilkomu þeirra er stigið stórt framfaraskref. Hafbjörg í smíðum hjá fyrirtækinu Kewatec í Finnlandi. Síldarvinnslan hefur ákveðið að veita Björgunarskipasjóði Slysavarnafélags Íslands í Neskaupstað myndarlegan styrk vegna kaupanna á þessu nýja skipi og í tilefni af því ræddi tíðindamaður heimasíðu Síldarvinnslunnar við Helga Frey Ólason formann sjóðsins að máli. Helgi sagði að styrkur Síldarvinnslunnar skipti Björgunarskipasjóðinn gríðarlegu máli en fleiri fyrirtæki hefðu einnig veitt styrki til kaupa á nýja skipinu og það hefðu sveitarfélögin Fjarðabyggð og Múlaþing einnig gert. „Ríkið leggur til helming kaupverðsins en Landsbjörg og Björgunarskipasjóðurinn eru saman um hinn helminginn. Sjóðurinn þarf að leggja fram um 90 milljónir króna en skipið kostar um 400 milljónir. Fjársöfnunin nú er sú lang viðamesta sem Björgunarsveitin hér hefur ráðist í. Hér er um að ræða stórt átaksverkefni. Tilkoma hins nýja báts er gríðarstórt framfaraskref en sambærilegir bátar verða einnig staðsettir á Vopnafirði og Hornafirði hér eystra. Við þessi tímamót er rétt að minna á að núverandi Hafbjörg hefur reynst frábærlega en hún var keypt í Svíþjóð og kom til Neskaupstaðar árið 2021. Núverandi Hafbjörg hefur sinnt margvíslegum verkefnum og reynst í alla staði afar vel. Nú eru hins vegar nýir tímar og komnar nýjar kröfur og það verður að fylgja þeim. Það verður ekki hjá því komist að endurnýja og nútímavæða björgunarskipaflotann á landinu. Gert er ráð fyrir að núverandi Hafbjörg verði seld og muni koma að góðum notum annars staðar á landinu. Rétt er að geta þess að öllum verkefnum á björgunarskipum landsins er sinnt í sjálfboðavinnu og það skiptir öllu máli að hafa traustan hóp á bakvið starfsemi hvers skips. Við hér í Neskaupstað búum svo vel að eiga afar góðan hóp sem unnt er að treysta fullkomlega á og er tilbúinn að hlaupa í verkefni hvenær sem þörf er á. Í þessum hópi eru margir sem starfa einmitt hjá Síldarvinnslunni. Fyrir þennan hóp er sérstakt tilhlökkunarefni að fá hið nýja skip. Það verður svo sannarlega ánægjulegt að sjá nýja Hafbjörgu sigla inn Norðfjörðinn næsta sumar,” sagði Helgi Freyr.