Innlent | Sunnudagsblað | 8.8.2026 | 8:00 Úr ólíkum áttum: Borg íþrótta- og útilífs Hildur Björnsdóttir Setja bókamerki Pistill Hildar Björnsdóttur úr Sunnudagsblaðinu Ríkt aðgengi að íþróttum, útivist og lifandi náttúru gerir Reykjavík að einstakri borg. Við höfum skíðasvæði í túnfætinum, þéttriðið net reiðleiða, upphitaðar sundlaugar, úrval golfvalla, fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir, öflugar laxveiðiár og óspillt útivistarsvæði. Innan borgarhverfa vinna hverfisíþróttafélög barna- og unglingastarf á heimsmælikvarða og sérsamböndin bjóða frábært úrval íþrótta. Fáar höfuðborgir búa yfir jafn greiðum aðgangi að íþróttum og útivist – þessu erum við stolt af og þetta þarf að verja. Þéttbýlismyndun hefur vaxið á undanliðnum áratugum. Afgerandi meirihluti Evrópubúa er nú búsettur í borgum. Búsetu í þéttu borgarumhverfi fylgja fjölmargir kostir, en búsetan takmarkar gjarnan beinan aðgang að óspilltri náttúru. Hún veldur áreiti með aukinni hljóð- og loftmengun. Það er því hverjum þéttbýlingi nauðsynlegt að eiga greiðan aðgang að grænum svæðum. Þannig má stuðla að bættri andlegri og líkamlegri heilsu en ekki síður auknum loftgæðum. Þetta hefur alþjóðaheilbrigðisstofnun staðfest. Í þessu samhengi þarf að huga vel að þeim útivistarperlum sem við borgarbúar eigum í sameiningu – svo sem Elliðaárdal og Heiðmörk – en þessi grænu lungu borginnar eiga að standa opin, óspillt og aðgengileg öllum, nú og til framtíðar. Nýverið samþykkti nýr meirihluti að ráðast í skógræktarátak sem fela mun í sér gróðursetningu 50.000 trjáplantna árlega innan borgarmarkanna. Gróðursetning getur farið fram á opnum svæðum, meðfram götum, í hverfisskógum eða á jaðri byggðar. Átakið er metnaðarfull sókn sem hefur það að markmiði að auka loftgæði, lífsgæði og aðgengi almennings að grænni náttúru í Reykjavík. Uppbygging íþróttastarfs fyrir börn og ungmenni verður í forgrunni hjá nýjum meirihluta. Margvíslegar rannsóknir hafa sýnt hvernig þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi bætir lýðheilsu, eflir sjálfsmynd og byggir upp félagsauð sem endist ævilangt. Frístundastyrkurinn er mikilvægt tæki og tryggja þarf að hann nái til allra barna, óháð efnahag foreldra. Samhliða þarf ávallt að styðja við öflugt afreksstarf svo börnin okkar geti átt heilbrigðar fyrirmyndir. En íþróttaborgin á ekki að einskorðast við börn og afreksfólk. Hreyfing á að vera aðgengileg fólki á öllum æviskeiðum. Eldra fólk er stækkandi hópur borgarbúa og hreyfing skiptir sköpum fyrir heilsu þess og lífsgæði. Við þurfum að fjölga tækifærum til hreyfingar fyrir alla aldurshópa og skilgreina Reykjavík sem íþrótta- og útilífsborg á heimsmælikvarða. M arkmiðið er skýrt: að Reykjavík verði áfram – og í enn ríkari mæli – borg þar sem náttúran er ekki fjarlæg heldur samofin daglegu lífi okkar allra og borg þar sem hreyfing stendur fólki til boða á öllum æviskeiðum. Það eru verkefni sem við ættum öll að geta sameinast um. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs Enski boltinn 25% dýrari Börn þolendur alvarlegs ofbeldis Lenti utan vegar eftir framúrakstur Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Vistvæn stefna í loftslagsmálum er lífsnauðsyn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Fjölbreytt dagskrá Hinsegin daga í dag 14 ára drengur skaut átta til bana í Taílandi Mest lesið Í gær Í vikunni Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Hjólhýsi fauk á hliðina Tölvan ekki lengur úr töskunni Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Myndir: Níu af bestu trukkum Páls Óskars Breytt eldvarnarverklag veldur ama Umdeild ESB-reglugerð áfram í gildi Reykjanesbær kemur að útfararkostnaði Gunnars „Erfitt að sjá hvaða gloppur þarf að laga“ Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Nýjast á mbl.is » Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs Enski boltinn 25% dýrari Börn þolendur alvarlegs ofbeldis Lenti utan vegar eftir framúrakstur Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Vistvæn stefna í loftslagsmálum er lífsnauðsyn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Inga: Börnin hafa beðið of lengi Enski boltinn 25% dýrari Litið til almannaöryggis vegna brottvísunar Heilbrigðisþjónusta kallar á aðflutning Mest lesið Í gær Í vikunni Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Hjólhýsi fauk á hliðina Tölvan ekki lengur úr töskunni Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Myndir: Níu af bestu trukkum Páls Óskars Breytt eldvarnarverklag veldur ama Umdeild ESB-reglugerð áfram í gildi Reykjanesbær kemur að útfararkostnaði Gunnars „Erfitt að sjá hvaða gloppur þarf að laga“ Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“