Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Öldungadeildin enn öflugri í gleðigöngunni

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 8.8.2026 | 9:19 Öldungadeildin enn öflugri í gleðigöngunni Hér eru Ragnhildur og Hanna Katrín Friðriksson í gleðigöngu 60+-hópsins í fyrra en hún segir að mun stærri hópur verði með í ár. Ljósmynd/Sunna Ben Dóra Ósk Halldórsdóttir [email protected] Setja bókamerki Alla vikuna hafa verið fjölbreyttir atburðir á Hinsegin dögum og í gær var margt á dagskránni, m.a. regnbogagolfmót; regnbogakökukeppni; ungmennakviss, og barsvar og kynslóðaspjall í Iðnó síðdegis. Þar leiddi spjallið öldungadeildin eða 60+-hópurinn. Ragnhildur Sverrisdóttir er ein skipuleggjenda kynslóðaspjallsins, en hún gekk í Samtökin '78 árið 1979 og var fyrsta konan sem var kosin í stjórn þeirra, árið 1983. „Við í 60+-hópnum byrjuðum að hittast aftur einu sinni í mánuði, eftir að hafa mörg ekki verið mikið í tengslum undanfarin ár en verið viðloðandi starfsemina áður fyrr. Á þessum fundum höfum við gjarnan haft einhverja fræðslu, annaðhvort einhver innan hópsins, eða við fáum gesti, og kynslóðaspjallið núna fjallar um fræðslustarf samtakanna í gegnum tíðina.“ Frétt af mbl.is Myndir: Opnunarhátíð Hinsegin daga Fjörugar umræður Ragnhildur rifjaði upp upphaf fræðslustarfs Samtakanna '78 upp úr 1980 þegar Þorvaldur Kristinsson hafði beint samband við framhaldsskóla og bauðst til að halda kynningarfundi um samtökin. „Við fórum oft þrjú til fimm saman og héldum þessa fundi, stundum bara fyrir nokkra krakka í einum bekk, eða fyrir stóran hóp af öllum nemendum skólans.“ Þá mun Sara Dögg Svanhildardóttir, sem var fyrsti fræðslufulltrúinn sem var ráðinn, segja frá sinni reynslu og sama gerir Tótla I. Sæmundsdóttir, en á starfstíma þeirra komst fræðslustarfið í faglegar og fastari skorður, m.a. með samstarfi við sveitarstjórnir um fræðslu. Í lokin mun Andrea Rói Sigurbjörns segja frá stöðunni í dag. Frétt af mbl.is Hver einasta króna í trukkinn „Það er oft farið með ýmsar rangfærslur um hvers konar áróður sé verið að reka í grunnskólunum. Við viljum fræðast um það góða starf og Andrea Rói getur upplýst okkur um hvernig þetta fer fram í dag. Svo verða umræður á eftir, sem eru yfirleitt mjög fjörugar hjá þessum hópi og allir geta komið sem vilja.“ Miklu stærri ganga en í fyrra 60+-hópurinn tók þátt í gleðigöngunni í fyrra og verður enn öflugri í ár. „Þetta er orðinn ansi stór hópur hjá okkur og við verðum með tvo fornbíla, einn pallbíl og auðvitað besta plötusnúðinn í bænum, Andreu Jónsdóttur. Það verður því mesta fjörið í okkar hópi,“ segir hún. „Við erum t.d. búin að gera boli. Í fyrra vorum við með boli sem stóð á „Regnboginn dofnar ekki með árunum“ og núna erum við með bolina „Öldungis hinsegin“. Þetta er heilmikill undirbúningur en það er búið að vera mjög gaman hjá okkur.“ Ragnhildur segist hafa frétt í gær að núna séu 50 atriði skráð í gleðigönguna, til samanburðar voru 38 í fyrra svo gangan verður ennþá stærri en hefur verið og jafnvel sú flottasta hingað til. „Ég held að þessi fjölgun í göngunni sé bein viðbrögð samfélagsins okkar við mjög augljósu bakslagi og rætnara orðalagi um okkur. Það þjappar fólki áreiðanlega saman,“ segir hún og er mjög ánægð með þau viðbrögð. „Ég er einnig ánægð með að það séu margir sem vilja halda íslenska fánanum á lofti í göngunni núna. Það er mikilvægt svo að önnur öfl fái ekki að gera hann að sínum og eyðileggja þar með það samstöðutákn sem íslenski fáninn er fyrir okkur öll, rétt eins og regnbogafáninn okkar er fyrir hinsegin samfélagið.“ Mannréttindi allra Ragnhildur segir bakslag gegn réttindum hinsegin fólks blasa við öllum í því samfélagi. Kannski hafi hinsegin samfélagið verið farið að slaka á og sumir jafnvel talið að baráttunni væri lokið. En það hafi sýnt sig að því fer fjarri. „Baráttan fyrir mannréttindum, ekki síst þegar réttindin eru nýfengin, þarf að vera stöðug, því eins og við sjáum geta réttindi glatast auðveldlega. Núna beinist hatursorðræðan mjög mikið gegn trans fólki og ofsinn er með ólíkindum. Þar eru reyndar margar upphrópanir kunnuglegar frá upphafi baráttunnar. Þá voru samkynhneigðir skotmarkið, núna er það trans fólk. En ég vil benda á að það fólk sem vill banna mannréttindi eins hóps stoppar ekkert þar. Það má sjá, t.d. í Bandaríkjunum, að skerðing réttinda trans fólks teygir sig víðar og þar er farið að vega hart að mannréttindum kvenna líka. Þetta hangir allt saman. Trans fólk er auðvitað engin ógn núna fremur en samkynhneigðir voru þá og við eigum að taka höndum saman gegn svona vitleysu.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Öldungadeildin enn öflugri í gleðigöngunni „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Sólin lætur sjá sig vestantil í dag Fær milljarð dollara frá Trump í meðgjöf Áfall fyrir ungan leikmann Arsenal Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Vistvæn stefna í loftslagsmálum er lífsnauðsyn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Tölvan ekki lengur úr töskunni Mest lesið Í gær Í vikunni Enski boltinn 25% dýrari Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Lenti utan vegar eftir framúrakstur Umdeild ESB-reglugerð áfram í gildi Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Breytt eldvarnarverklag veldur ama Börn þolendur alvarlegs ofbeldis Hjólhýsi fauk á hliðina Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Nýjast á mbl.is » Öldungadeildin enn öflugri í gleðigöngunni „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Sólin lætur sjá sig vestantil í dag Fær milljarð dollara frá Trump í meðgjöf Áfall fyrir ungan leikmann Arsenal Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Vistvæn stefna í loftslagsmálum er lífsnauðsyn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brottvísanir skipverja hafnar Litið til almannaöryggis vegna brottvísunar Inga: Börnin hafa beðið of lengi Byggir ekki eingöngu á vísindalegu mati Mest lesið Í gær Í vikunni Enski boltinn 25% dýrari Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Lenti utan vegar eftir framúrakstur Umdeild ESB-reglugerð áfram í gildi Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Breytt eldvarnarverklag veldur ama Börn þolendur alvarlegs ofbeldis Hjólhýsi fauk á hliðina Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“

Share this article