Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fjallkona Hafnarfjarðar: „Gömul kona? Hvað á hún að gera upp á svið?“

Read Full Article →

Gunnhildur Sigurðardóttir er fjallkona Hafnarfjarðar í ár. Gunnhildur, sem er 85 ára gömul, segir útnefninguna vera mikinn heiður. „Ég var bara svo hissa þegar hún Sunna hringdi í mig og sagði að það væri búið að útnefna mig sem fjallkonu Hafnarfjarðar. Og ég hugsaði með mér, ertu að grínast? Því gömul kona? Hvað á hún að gera upp á svið?“ segir Gunnhildur. Þegar Gunnhildur steig á svið flutti hún ljóð eftir Stefán frá Hvítadal sem samið var við vígslu St. Jósefsspítala fyrir sléttum 100 árum. Ljóðið er Gunnhildi kært en hún starfaði á spítalanum í 40 ár, fyrst sem hjúkrunarfræðingur og síðan sem hjúkrunarforstjóri til þrjátíu ára.

Share this article