Ragnar Árnason, prófessor emeritus, sakar rektor Háskóla Íslands um að leggja stein í götu upplýsingamiðlunar um Ísland og ESB með ákvörðun sinni um að meina honum að halda fyrirlestur á hátíðarsal skólans. Fréttastofa greindi frá því í gær að fyrirlestur dr. Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, um Ísland og ESB verði ekki á hátíðarsal skólans eins og auglýst hafði verið. Rektor sagði salinn ekki ætlaðan viðburðum sem eru pólitískir í eðli sínu og að bókun hans hafi ekki fylgt upplýsingar um að félagasamtök kæmu að fundinum. Í yfirlýsingu til fréttastofu segir Ragnar að umsókn hans um salarleiguna hafi verið nákvæmlega í samræmi við fyrirhugaðan fund. Lætur hann umsóknina sjálfa fylgja með. Í sameiginlegri yfirlýsingu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar og Ragnars er þess krafist að Háskóli Íslands standi við leigusamninginn, en taki ekki upp á því að ritskoða virtan fræðimann vegna hugsanlegra skoðana sinna. Fyrirlestur dr. Baudenbachers, sem verður 10. ágúst, var auglýstur á heilli síðu í Morgunblaðinu í gær . Í auglýsingunni kemur fram að rædd verði ýmis álitaefni um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu og fundarstjóri sé Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands. Þá verði bók dr. Baudenbachers og dr. Lauru M. Baudenbacher til sölu á staðnum. Neðst í auglýsingunni er merki samtakanna Áfram Íslands og Almenna bókafélagsins og fram kemur að fyrirlesturinn sé í samstarfi við Rannsóknarsetur í stjórnmálum og efnahagsmálum við Félagsvísindastofnun. Þegar fréttastofa hafði samband við Halldór Benjamín Þorbergsson, formann stjórnar Áfram Íslands, til að kanna hvort skipuleggjendur ætluðu að þiggja annan húsakost Háskólans fyrir fyrirlesturinn sagði hann að málið væri enn til úrlausnar hjá þeim sem standi að fyrirlestrinum, en hafnaði því þó að fyrirlesturinn væri á vegum Áfram Íslands.