Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Óska tafarlaust eftir svörum rektors

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.8.2026 | 19:05 Óska tafarlaust eftir svörum rektors Hannes Hólmsteinn, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, Ragnar Árnason, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, og Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Anton Brink/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð ESB mun semja fyrir okkur „Evran gæti orðið meira en gildra“ » Fleiri tengdar fréttir Hannes Hólmsteinn Gissurarson og Ragnar Árnason, sem báðir eru fyrrverandi prófessorar við Háskóla Íslands, sendu Silju Báru Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands, bréf þar sem þeir krefjast þess að Háskólinn standi við leigusamning þann sem gerður var við Ragnar á dögunum um fyrirlestur um Ísland, Evrópska efnahagssvæðið og Evrópusambandið. Greint hefur verið frá því að fyrirlesturinn var færður úr Hátíðarsal Háskóla Íslands vegna þess að hann var álitinn of pólitískur, en Dr. Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins og einn helsti sérfræðingur heims í EES-samningnum og Evrópurétti, átti þar að halda erindi. Frétt af mbl.is Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Telja ástæðu háskólans alranga „Það hefur oft tíðkast, að samtök og aðilar utan Háskólans hafi átt samstarf við stofnanir innan Háskólans um fundi og tekið að sér að vekja athygli á þeim. Aldrei hefur okkur vitanlega verið amast við því,“ segja þeir í bréfinu til rektors. Þar segir einnig að hinn 6. ágúst hafi auglýsing um fyrirlesturinn verið birt í Morgunblaðinu. Var hún í nafni Rannsóknarseturs um stjórnmál og efnahagsmál, en jafnframt hafi birst í auglýsingunni nafn tveggja aðila sem vildu vekja athygli á fyrirlestri dr. Baudenbachers. Voru það Áfram Ísland og Almenna bókafélagið. „Sama dag og auglýsingin birtist, 6. ágúst, höfðu tveir starfsmenn Háskólans samband við Ragnar Árnason og sögðu, að ekki kæmi til greina að standa við leigusamninginn um afnot af hátíðarsal Háskólans, því að þetta væri stjórnmálafundur, sem samtökin Áfram Ísland og Almenna bókafélagið héldu. Hefði það ekki verið upplýst, þegar salurinn var pantaður.“ „Ragnar gaf engar rangar upplýsingar“ Telja Hannes og Ragnar það alrangt þar sem það sé Rannsóknarsetur um stjórnmál og efnahagsmál sem standi að fundinum, ekki Áfram Ísland eða Almenna bókafélagið og segja þeir mörg dæmi um það þar sem áhugaaðilar hafi auglýst upp á sitt eindæmi fyrirlestra og atburði sem fram hafa farið í HÍ. „Ragnar gaf engar rangar upplýsingar, þegar hann pantaði salinn, enda var þá ekki ljóst, hvaða stofnun innan Háskólans myndi standa að fyrirlestrinum, og þetta er fræðilegur fyrirlestur eins helsta sérfræðings heims um Evrópumál, eins og Háskólinn hefur raunar viðurkennt með því að fá hann sem gistiprófessor til að kenna um Evrópumál,“ segir í bréfinu. „Við teljum það væntanlega óafvitandi en í reynd atlögu að fræðilegu (akademísku) frelsi og hlutverki og markmiðum Háskóla Íslands, ef þessum heimskunna fræðimanni er neitað um að flytja fræðilegan fyrirlestur í Háskóla Íslands á þeim vettvangi, sem hér um ræðir, af því að einhverjir kunna að vera ósáttir við hina fræðilegu nálgun hans eða við þá aðila, sem athygli vilja vekja á hinum fræðilega fyrirlestri hans. “ Skiptir ekki máli hverjir vilji vekja athygli á fyrirlestrinum Aðalatriði málsins segja þeir að Baudenbacher muni flytja fræðilegan fyrirlestur á vegum rannsóknarseturs í Háskólanum. Skipti í því sambandi engu máli þótt ýmsir aðilar vilji vekja athygli á fyrirlestrinum. Í lok bréfsins er þess krafist að Háskóli Íslands standi við leigusamninginn en taki ekki allt í einu upp á því að ritskoða heimskunnan og virtan fræðimann vegna hugsanlegra skoðana hans eða vegna áhuga innlendra aðila á hinum fræðilega fyrirlestri hans. „Þetta yrði fordæmalaust og örlagaríkt skref fyrir Háskólann. Þar eð fyrirlestur dr. Carls Baudenbachers á að vera eftir þrjá daga, hinn 10. ágúst, þá óskum við eftir tafarlausum svörum rektors. Skorum við á hana að standa við gerðan samning. “ Bréfið í heild sinni birti Hannes á Facebook og má sjá færsluna hér að neðan: Tengdar fréttir Ísland og ESB Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð ESB mun semja fyrir okkur „Evran gæti orðið meira en gildra“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hlín og stöllur úr leik eftir skell Óska tafarlaust eftir svörum rektors Virtu lokanir í miðborg að vettugi Tottenham sendir kantmanninn til óvinanna Íslandsmeistarinn styrkti stöðu sína Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Af hverju vill ríkisstjórnin ekki lækka vexti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enski boltinn 25% dýrari Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni Inga: Börnin hafa beðið of lengi Heppnar að vera hinsegin á Íslandi Mest lesið Í gær Í vikunni Enski boltinn 25% dýrari Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Ég er ekkert að fegra lífið Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Gleðigangan í beinu streymi Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Lenti utan vegar eftir framúrakstur Afurðaverðið fellur Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Nýjast á mbl.is » Hlín og stöllur úr leik eftir skell Óska tafarlaust eftir svörum rektors Virtu lokanir í miðborg að vettugi Tottenham sendir kantmanninn til óvinanna Íslandsmeistarinn styrkti stöðu sína Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Af hverju vill ríkisstjórnin ekki lækka vexti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sex sýknaðir: Annmarkar á rannsókn lögreglu Velgengnin byggist á yfirráðum yfir auðlindinni 14 ára drengur skaut átta til bana í Taílandi Vilja bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði Mest lesið Í gær Í vikunni Enski boltinn 25% dýrari Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Ég er ekkert að fegra lífið Sendir yfirlýsingu í kjölfar úthýsingar HÍ Gleðigangan í beinu streymi Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Lenti utan vegar eftir framúrakstur Afurðaverðið fellur Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“

Share this article