Lögmannsstofan Fulltingi hagnaðist um 162 milljónir króna í fyrra, samanborið við 106 milljónir árið 2024. Tekjur jukust um 15% og námu 759 milljónum. Í ársreikningi segir að samhentur hópur starfsmanna, gott markaðsstarf og þær áherslubreytingar sem stjórn gerði á rekstri félagsins í byrjun árs 2024 hafi styrkt rekstrar- og markaðsstöðu félagsins. Ársverk voru 20. Eignir í árlok námu 539 milljónum og eigið fé nam 165 milljónum. Lykiltölur / Fulltingi slf. 2025 2024 Tekjur 759 660 Eigið fé 165 109 Eignir 539 441 Afkoma 162 106 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .